Háð
EyjanManni verður stundum hugsað til blaðamanna á Morgunblaðinu sem eitt sinn unnu í háborg íslenskrar fjölmiðlunar – á tíma Matthíasar og Styrmis. En vinna nú á blaði sem er svo gjörsamlega gegnsýrt af skoðunum eins manns – að það telst eiginlega vera prívatfjölmiðill hans. Blaðið gengur eiginlega ekki út á neitt annað en að verja Lesa meira
Allt lokað?
EyjanÉg hef aldrei séð jafnmarga erlenda ferðmenn í Reykjavík síðla vetrar og nú. Tíðni flugferða til og frá landinu hefur líka aukist mikið. Í síðustu viku byrjaði Easy Jet að fljúga hingað – það er sérlega öflugt lágfargjaldaflugfélag. Á fimmtudaginn er skírdagur, svo kemur föstudagurinn langi, þvínæst páskadagur og annar í páskum. Með fullt af Lesa meira
Bananar og íslenskur fiskur?
EyjanVið erum ekkert eyland á Íslandi og það er ekki nýtt undir sólinni að fyrirtæki noti net dótturfyrirtækja til að koma undan hagnaði. Í Kastljósi síðustu viku var staðhæft að þetta væri raunin með Samherja – og hugsanlega fleiri íslensk útgerðarfyrirtæki. Svona athæfi er alþjóðlegt – eitt hugtak sem er notað um það er transfer Lesa meira
Að gefa ölmusu
EyjanKona mín gerir grín að mér á ferðalögum sökum þess að betlarar og útigangsfólk koma auga á mig á löngu færi. Ég virðist vera útvalið skotmark fyrir slíkt fólk. Þess vegna þarf ég helst að hafa vasa fulla af smápeningum í útlöndum – og reyndar sakar það ekki í miðborg Reykjavíkur. Nú les ég á Lesa meira
Þáttur Sandi Toksvig
EyjanSiðuhaldari var gestur í útvarpsþætti Sandi Toksvig á BBC4 fyrir stuttu. Þátturinn heitir Excess Baggage og fjallar um ferðalög. Það er hægt að hlusta á þáttinn með því að smella hérna.
Hvers eiga Jónas og lóan að gjalda?
EyjanEf það er eitthvað sem mér er ómögulegt að tengja Jónas Hallgrímsson við þá eru það peningar. Jú, það sem Jónas gerði verður ekki metið til fjár – en sjálfur átti hann aldrei fé. 10 þúsund króna seðill verður fyrst og fremst tákn um langvarandi efnahagslega óstjórn á Íslandi. Hvers á Jónas að gjalda að Lesa meira
Bensínverð hamlar varla útlendum ferðamönnum
EyjanStöð 2 birtir viðtal við hótelhaldara á Austurlandi sem segist óttast að ferðamannastraumur minnki vegna þess að bensínverð er hátt. Akstur Íslendinga hefur þegar minnkað talsvert síðustu árin – ekki einungis vegna hins háa bensínverðs, heldur líka vegna þess að bílaflotinn hefur elst, verðlag á gistingu og veitingum er hátt fyrir okkur heimafólkið, kaupmáttur hefur Lesa meira
Tröllaukinn Mahler í bíói
EyjanTónleikar Gustavos Dudamel og Gautaborgarsinfóníunnar í Hörpu síðastliðið sumar eru einhverjir þeir allrabestu sem ég hef farið á – og hef ég þó farið á klassíska tónleika víða um heim. Tónlistarflutningur í Hörpu hefur varla risið hærra en þetta – það er í raun dálítið óþægilegt fyrir okkar ágætu Sinfóníuhljómsveit að mæla sig við það Lesa meira
Varla dautt mál
EyjanStundum skilur maður ekki hamfarirnar í þingsölum. Það er eins og himinn og jörð séu að farast. Í kvöld var þar allt vitlaust vegna atkvæðagreiðslu um tillögur Stjórnlagaráðs sem sumir vildu halda samhliða kosningum. Það var eins og málið væri barasta dautt ef þetta tækist ekki. En svo er auðvitað ekki. Ef ríkisstjórninni og stjórnarliðum Lesa meira