JAK heldur útgáfutónleika fyrstu sólóplötu sinnar – „Platan kallar á spilun“
FókusSöngvarinn Stefán Jakobsson hefur fyrir löngu getið sér gott orð með hljómsveitinni DIMMA og víðar. Undanfarið hefur hann unnið að sinni fyrstu sólóplötu, sem heitir einfaldlega JAK sem er einnig listamannsnafn Stefáns. Tónlistina vann Stefán í samvinnu við Halldór Á Björnsson (Legend), textasmíðar eru Stefáns og Magnúsar Þórs og landskunnir tónlistarmenn og vinir ljáðu Stefáni Lesa meira
Eldur og Ís Tamars í útsetningu Snorra
FókusSjómaðurinn og þriggja barna faðirinn, Mikael Tamar Elíasson, hefur vakið verðskuldaða athygli á samfélagsmiðlum fyrir ljóð sín. Í gær kom út lagið Eldur og ís í útsetningu Snorra Snorrasonar, en Tamar á bæði lag og texta. Eftir að hafa legið með þetta lag ofan í skúffu síðan í vetur þá hoppaði það upp og vill Lesa meira
Smáa letrið – Hárbeitt og sjóðandi byltingarþjóð Lindu Vilhjálmsdóttur
FókusSmáa letrið er sjöunda ljóðabók Lindu Vilhjálmsdóttur, kynngi mögnuð bók full af hárbeittum og sjóðandi feminískum byltingarljóðum um formæður og fjallkonur, dömur og druslur – konur fyrr og nú, dæmdar í óskráða ánauð allar sem ein. Ljóðin eru hrein og bein, meitluð og leiftrandi kímin á köflum, og áhrifamáttur þeirra felst ekki síst í því hve Lesa meira
Magnús og Jóhann bæta við aukatónleikum í Bæjarbíói
FókusVegna mikillar eftirspurnar á tónleika Magnúsar Þórs Sigmundssonar og Jóhanns Helgasonar í Bæjarbíói bæta þeir félagar við aukatónleikum miðvikudagskvöldið 19. september næstkomandi. Hljómsveitarstjóri er Börkur Hrafn Birgisson kenndur við Jagúar og Benzin music. Á dagskránni verður samantekt af bestu lögum þeirra. Það vita ekki allir en þeir eiga aragrúa af lögum sem lifað hafa með Lesa meira
Nýjasta plata Helga Björns komin út – Inniheldur 8 glæný lög
FókusNýjasta platan frá Helga Björnssyni, Ég stoppa hnöttinn með puttanum, kom út í dag. Fæst hún á geisladiski í helstu verslunum og á aldamusic.is. Um er að ræða 8 glæný lög sem mestmegnis eru samin af þeim Helgi Björnssyni, Guðmundi Óskari Guðmundssyni og Atla Bollasyni. Hér má finna nýju plötuna ásamt eldri plötum Helga. Platan Lesa meira
Tímarit Máls og Menningar komið út – Skartar háspennumastri á upphlut
FókusÞriðja Tímaritshefti ársins kom úr prentsmiðju fyrir helgi, lagði af stað til áskrifenda á mánudag og fór í bestu bókabúðir á þriðjudag. Það er sjón að sjá í þetta sinn, skartar á kápu listaverki eftir Þuríði Sigurðardóttur: fagurlega unninni mynd af háspennumastri á upphlut! Um kápumyndina segir Þuríður: „Háspennumastur af þeirri gerð sem hér er Lesa meira
Véronique Gens syngur Sumarnætur Berlioz
FókusÍ kvöld flytur Véronique Gens ljóðaflokkinn Sumarnætur eftir Berlioz á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í Eldborgarsal Hörpu. Gens er ein fremsta sópransöngkona Frakklands um þessar mundir og er fastagestur við óperuhús á borð við Covent Garden, Glyndebourne og Parísaróperuna, og söng fyrr á þessu ári með Berlínarfílharmóníunni við frábærar undirtektir. Nýjasti geisladiskur hennar var valinn einn Lesa meira
Hljómsveitin Hedband gefur út sitt fyrsta lag – „Hugmynd sem var of góð til að vera bara hugmynd“
FókusHedband gaf í dag út sitt fyrsta lag, en sveitina skipa Karitas Harpa Davíðsdóttir og Inga Birna Friðjónsdóttir. „Við fengum Thorisson (Borgar Þórisson) til leiks með okkur í þessu lagi og meira á leiðinni. Hann á lagið, mix og master en við stúlkurnar eigum textann og laglínuna svo unnum við þetta þrjú saman,“ segir Karitas Lesa meira
Fjölskyldustund með Siggu Dögg
FókusÁ föstudaginn næstkomandi hefjast fjölskyldustundir í Borgarbókasafninu í Kringlunni. Þá ætlar hún Sigga Dögg, kynfræðingur, að halda erindi um þau áhrif sem nýtt barn hefur á foreldra og hvernig fræða má börn frá fæðingu um líkamann, samþykki og ást. Borgarbókasafnið Kringlunni býður nú í fyrsta sinn upp á fjölskyldustundir fyrir foreldra með ungabörn og Lesa meira
Rauð síld ræðir Lof mér að falla
FókusHeiðar Sumarliðason heldur úti Rauð síld: kvikmynda- og sjónvarpshlaðvarpi. Í nýjasta þættinum ræða hann og Tómas Valgeirsson, blaðamaður DV, nýjustu mynd Baldvins Z, Lof mér að falla. Myndin var frumsýnd föstudaginn 7. september og hefur fengið einróma lof bæði áhorfenda og gagnrýnenda. Hvernig ætli þeim félögum hafi litist á myndina? Eða eins og Heiðar skrifar Lesa meira
