fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Fjöldi atriða í áætlun um mat á umhverfisáhrifum umdeilds vindorkuvers sagður óskýr – „Hvaðan eru þær upplýsingar komnar?“

Jakob Snævar Ólafsson
Miðvikudaginn 1. apríl 2026 20:30

Næsti vegur við Brekknaheiði þar sem hluti vindmyllanna á að vera. Mynd: Skjáskot/Já.is.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birt hefur verið í Skipulagsgátt álit Húsnæðis- mannvirkja og skipulagsstofnunar (HMS) um áætlun um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar byggingu vindorkuvers á Langanesi. Áformin hafa verið umdeild, meðal annars hafa landeigendur í næsta nágrenni gagnrýnt þær. Í áliti HMS er gerður fjöldi athugasemda við áætlunina og nefnd ýmis atriði í henni sem skýra þurfi betur.

Um umfangsmiklar framkvæmdir verður að ræða en til stendur að reisa vindorkuverið á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi, skammt austur af þorpinu á Þórshöfn á Langanesi. Ætlunin er að orkuverið samanstandi af allt að 74 vindmyllum sem verði hátt í 210 metrar á hæð. Vindmyllurnar eiga að skila alls 532,8 megavöttum af orku. Alls eiga vindmyllurnar að standa á 37 ferkílómetra svæði á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi en vesturendi svæðisins verðu í um 3,5 kílómetra fjarlægð frá Þórshöfn.

Það er fyrirtæki í eigu tveggja Þjóðverja sem stendur fyrir framkvæmdunum en meðal annars hefur verið lýst yfir áhyggjum af sjónmengun.

Áhyggjur af sjónmengun vegna tuga vindmylla sem til stendur að reisa skammt frá Þórshöfn

Nokkur fjöldi umsagna barst um áætlunina um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdanna, þegar hún var til kynningar í Skipulagsgátt. Meðal þeirra var ítarleg athugasemd frá fulltrúa landeiganda jarðar sem er skammt frá framkvæmdarsvæðinu en í athugasemdinni voru áformin gagnrýnd harðlega og færð margvísleg rök fyrir því að þær muni valda meðal annars mengun, miklu raski á náttúrunni og að rekstur vindorkuversins muni varla ganga upp. Var áréttað að ekki kæmi til greina að selja jörðina þrátt fyrir mikla ásælni í hana.

Ætla ekki að selja 230 ára ættaróðalið fyrir skammtímagróða einnar kynslóðar

Athugasemdir

Álit HMS um áætlunina er dagsett í desember síðastliðnum en var fyrst birt í dag. Það er í Skipulagsgátt merkt sem álit en í upphafi þess er þó tekið fram að skýra þurfi ýmislegt í áætluninni áður en hægt sé að gefa út endanlegt álit en þetta misræmi er ekki skýrt nánar og matsáætlunin var ekki birt í Skipulagsgátt fyrr en í janúar 2026. Matsáætlunin er ekki lengur aðgengileg þar og því alls óljóst hvort þetta álit eigi við um eldri gerð sem hafi síðan verið lagfærð í samræmi við athugasemdirnar en ef sú er raunin væri undarlegt að birta ekki nýrra álit og því er í raun varla hægt, þar til annað kemur í ljós, að gera ráð fyrir öðru en um sé að ræða álit um áætlun sem þegar hefur verið birt opinberlega.

Meðal athugasemdanna við matsáætlunina er að í henni segi að rannsóknarsvæðið sé 39,4 ferkílómetrar þar sem að það innihaldi lóðir og 500 metra radíus út frá hverri vindtúrbínu. Hér sé óljóst við hvað sé átt.

Um fullyrðingu í áætluninni um að frumathuganir og fyrirliggjandi gögn gefi vísbendingar um að aðstæður og vindafar á fyrirhuguðu framkvæmdarsvæði sé hagstætt til raforkuframleiðslu spyr HMS:

„Hvaða athuganir hafa farið fram og á hvaða fyrirliggjandi gögnum er byggt?“

Upplýsingar

Í álitinu er vísað til leiðbeininga sem samkvæmt áætluninni verði unnar á tímabilinu 2025-2026. Það kemur ekki fram nánar um hvaða leiðbeiningar er að ræða en HMS spyr um þessa tímasetningu:

„Hvaðan eru þær upplýsingar komnar?“

Einnig er spurt hvað sé átt við með að fyrirtækið WPD sem stendur fyrir verkefninu hafi tekið við verkefninu frá verkfræðistofunni EFLU árið 2022.

Stofnunin segir einnig að í áætluninni virðist vera alveg opið hver verði löndunarhöfn fyrir íhluti í vindorkuverið en væntanlega séu þetta allt hafnir sem hafi aðstöðu til að taka við þessum stóru hlutum en til upplýsinga ætti að koma fram í matsáætlun vegalengd frá viðkomandi höfn til framkvæmdarsvæðisins. Vegna hinnar mjög löngu vegalengdar frá Akureyri annars vegar og Seyðisfirði hins vegar á svæðið væri vart raunhæft að gera ráð fyrir að þessar hafnir yrðu notaðar til uppskipunar. Í matsáætlun þyrfti að þrengja niður þetta val á mögulegum uppskipunarhöfnum.

Telur stofnunin að í matsáætlun ætti einnig að koma fram áætlun um áfangaskiptingu fyrirhugaðra framkvæmda.

Hverjir?

HMS gerir einnig athugasemdir við að gefið sé í skyn að nýta megi raforku frá fyrirhuguðu vindorkuveri í atvinnuuppbyggingu í Finnafirði án þess að neinar upplýsingar um stöðu mála varðandi stórskipahöfn í firðinum séu í matsáætluninni.

Það skorti upplýsingar um hverjir muni standa fyrir rannsóknum á gróðurfari, fuglalífi og áhrifum framkvæmdanna á önnur dýr, einkum hreindýr og það skorti einnig upplýsingar hvernig staðið verði að rannsóknunum:

„Mjög snubbótt umfjöllun um þær athuganir sem þarf að bæta úr í matsáætlun.“

Einnig segir að í matsáætlun þurfi að koma fram að í umhverfismatsskýrslu muni liggja fyrir áhrifamat á vatnshlot sem taki til alls áhrifasvæðisins og sem unnið verði í samræmi við leiðbeiningar Umhverfis- og orkustofnunar.

Loks eru gerðar ýmsar athugasemdir við fjarlægðarmörk og kort í áætluninni. Bent er á að taka þurfi myndir af svæðinu frá fleiri stöðum og þá ekki síst á víðáttumiklu svæði suðvestan við fyrirhugað framkvæmdasvæði.

Hvernig brugðist hefur verið við öllum þessuma athugasemdum er enn sem komið er óljóst en þetta álit er eina skjalið varðandi þessar fyrirhugðu framkvæmdir sem er aðgengilegt í Skipulagsgátt þegar þessi orð eru rituð.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Stofnandi Viðreisnar segir að þetta sé leiðin til að koma Samfylkingunni frá völdum

Stofnandi Viðreisnar segir að þetta sé leiðin til að koma Samfylkingunni frá völdum
Fréttir
Í gær

Krafði leigjanda um háar bætur fyrir stórskemmt starfsmannahúsnæði – Tapaði á því að hafa áður kennt Veitum um

Krafði leigjanda um háar bætur fyrir stórskemmt starfsmannahúsnæði – Tapaði á því að hafa áður kennt Veitum um
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Greip til óvenjulegs vopns til að ógna lögreglumönnum

Greip til óvenjulegs vopns til að ógna lögreglumönnum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dorrit harðlega gagnrýnd fyrir að nudda sér upp við hægri öfgamanninn Farage – „Ótrúlega ógeðfelldur maður“

Dorrit harðlega gagnrýnd fyrir að nudda sér upp við hægri öfgamanninn Farage – „Ótrúlega ógeðfelldur maður“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heiða Björg svarar fyrir sig og birtir kortayfirlitið – „Á myndinni má sjá öll útgjöld mín“

Heiða Björg svarar fyrir sig og birtir kortayfirlitið – „Á myndinni má sjá öll útgjöld mín“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Snorri segir að íslenska skólakerfið hafi ekki verið hannað til að taka á móti öllum þessum erlendu börnum

Snorri segir að íslenska skólakerfið hafi ekki verið hannað til að taka á móti öllum þessum erlendu börnum