Fjármálaráðherra: Stjórnin mun ekki hætta við hækkun VSK í ferðaþjónustu
EyjanBenedikt Jóhannesson efnhags- og fjármálaráðherra var gestur hjá Birni Inga Hrafnssyni í sjónvarpsþættinum Eyjan á ÍNN í gærkvöldi. Víða var komið við í tæplega 40 mínútna löngu viðtali. Ráðherrann fór yfir ýmis mál sem ríkisstjórnin og þá einkum ráðherrar Viðreisnar hafa unnið að fyrstu hundrað dagana síðan ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar og flokks fjármálaráðherra hafa Lesa meira
Sólrún ósátt við framhjáhaldsspurningar
FókusSólrún Diego er einn vinsælasti snappari landsins. Þúsundir fylgjast með henni þrífa í hverri viku. Í raun má segja að hún hleypi þúsundum ókunnugra inn á heimili sitt reglulega. Sólrún ákvað að loka fyrir þann möguleika að fylgjendur gæti sent henni spurningar og þá ákvörðun tók hún eftir að hafa fengið gagnrýni á sig sem Lesa meira
Vilhjálmur spyr: Hví í ósköpunum gera Alþingismenn ekkert í þessu?
EyjanFormaður Verkalýðsfélags Akraness, Vilhjálmur Birgisson, skrifar í pistli á Pressuna um hækkanir á skuldum heimilanna. Tilefni þess eru nýjar verðbólgutölur Hagstofu Íslands sem sýna að verðbólgan hér er einungis 1,9% á tólf mánaða tímabili. Vilhjálmur segir að þetta þýði, á mannamáli, að „verðtryggðar skuldir heimilanna hafa hækkað um 38 milljarða á síðustu 12 mánuðum en Lesa meira
Ímynd líkamsræktarstöðva trompar ekki mannréttindi
EyjanErna Ýr Öldudóttir skrifar: Alvarleg þróun er að eiga sér stað ef að aðilar telja sig geta ruðst inn í einkalíf og líkama viðskiptavina sinna. Með því að taka lífsýni úr einstaklingum er verið að reyna að stjórna lífsstíl þeirra. Í frétt á Vísi í dag segjast forsvarsmenn líkamsræktarstöðvanna Reebok Fitness og Sporthússins vera jákvæðir Lesa meira
Vill efla umræðuna um loftslagsbreytingar: „Það veit eiginlega enginn hvað þetta er eða um hvað þetta snýst“
Fókus„Þessi skilaboð verða að komast áleiðis, það veit eiginlega enginn hvað þetta er eða um hvað þetta snýst,“ segir Jón Gnarr grínisti, rithöfundur og fyrrverandi borgarstjóri en hann óskar eftir aukinni umræðu og vitundarvakningu um þær hættur sem steðja að jörðinni. Jón dvelur um þessar mundir í Houston í Texas ríki þar sem hann sinnir Lesa meira
Davíð segir Bjarna fara með „tóma þvælu“: „Íslandsmet í viðsnúningi“
EyjanDavíð Þorláksson fyrrverandi formaður Sambands Ungra Sjálfstæðismanna, SUS, gagnrýnir Sjálfstæðisflokkinn harðlega vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar að hækka virðisaukaskatt um 11% og segir hana stangast á við stefnu flokksins sem var ákveðin á landsfundi og hljóti að vera Íslandsmet í viðsnúningi. Vísar Davíð, sem starfar nú við ferðaþjónustu, í ályktun á síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins þar sem flokkurinn Lesa meira
Ragnheiður Elín komin í stjórn Landsvirkjunar
EyjanRagnheiður Elín Árnadóttir fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra er komin í stjórn Landsvirkjunar. Ragnheiður var skipuð af Benedikt Jóhannessyni fjármála- og efnahagsráðherra á aðalfundi Landsvirkjunar í dag. Haraldur Flosi Tryggvason lögmaður og fyrrverandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur og Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor við jarðvísindadeild Háskóla Íslands, koma líka ný inn í stjórnina en þar sitja áfram Álfheiður Lesa meira
Staða borgarinnar batnar – Halldór: „Það þarf rekstrarhugsun“
EyjanÁrsreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2016 sýnir að rekstur borgarinnar fer batnandi en rekstrarsamstæða borgarinnar skilar jákvæðum rekstri upp á 26,5 milljarða, sem er 15 milljörðum betri en áætlað var. Í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins segir að þetta sé ekki seinna vænna, rekstur Reykjavíkurborgar hafi verið í algjörum ólestri allt þetta kjörtímabil sem og kjörtímabilið 2010-2014. Allt Lesa meira
Þorsteinn ósammála Páli: Ekki hægt að halda því fram að verið sé að svelta spítalann
EyjanÞorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra gagnrýnir málflutning stjórnenda Landspítalans, þar á meðal Páls Matthíassonar forstjóra og segir að ekki sé hægt að halda því fram að verið sé að svelta spítalann. Segir Þorsteinn í samtali við Morgunblaðið í dag að ljóst sé að fjölmörg tækifæri séu til staðar til að gera betur í rekstri Landspítalans, Lesa meira
Trump: Munum ekki yfirgefa NAFTA „á þessari stundu“
EyjanDonald Trump Bandaríkjaforseti sagði Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada og Enrique Pena Nieto forseta Mexíkó að Bandaríkin myndu ekki ganga úr NAFTA, fríverslunarsamningi landanna þriggja, „á þessari stundu“. Þetta sagði Trump í símtölum við ráðamenn Norður-Ameríku í gærkvöldi, hringdi hann í þá í kjölfar þess að orðrómur fór af stað um að Trump hygðist láta Bandaríkin Lesa meira