Mynd
Bónus og Hagkaup lækka verð á um 1.000 vörum
Hagar hafa í dag lækkað verð á hátt í 1.000 vörum í Bónus og Hagkaup um 2% og gildir lækkunin til áramóta.
Í tilkynningu kemur fram að um sé að ræða stóran hluta eigin innflutnings Haga, fjölbreytt úrval af dagvöru fyrir heimili í nánast öllum vöruflokkum: almenn hilluvara, frystivara, kælivara, drykkjarvörur, hreinlætisvörur og snyrtivörur.