fbpx
Fimmtudagur 04.september 2025
433Sport

Birgir áhyggjufullur: „Þetta sýnir svart á hvítu að við verðum að bregðast við – ekki seinna en strax”

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 4. september 2025 19:30

Birgir Jóhannsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri Íslensks toppfótbolta (ÍTF), segir að niðurstöður könnunar sem ÍTF gerði fyrir skemmstu séu áhyggjuefni.

Þar kemur meðal annars í ljós að 75% leikmanna í Bestu deild karla telja að tíðni veðmála meðal leikmanna sé mikil eða mjög mikil, 58% hafa sjálfir veðjað á fótboltaleiki og 10% hafa fundið fyrir vanlíðan vegna þátttöku í veðmálum.

„Þetta sýnir svart á hvítu að við verðum að bregðast við – ekki seinna en strax,“ segir Birgir í aðsendri grein á vef Vísis þar sem hann fjallar um málið.

Má ekki gerast á Íslandi

Birgir bendir á að veðmál geti verið saklaus skemmtun en þau geti líka eyðilagt trúverðugleika íþrótta og haft alvarleg áhrif á líf leikmanna. Segir hann að nú verði brugðist við með fræðslu sem mun verða skylda fyrir alla leikmenn.

Í grein sinni bendir Birgir á að hjá ÍTF, sem eru hagsmunasamtök félaga í efstu deildum karla og kvenna, hafi lengi verið lögð áhersla á að tryggja að deildirnar séu hreinar af veðmálasvindli og að þátttaka í veðmálum sé ábyrg.

„Ég vil því halda þessari mikilvægu umræðu áfram og segja frá því sem við höfum gert til að sporna við vandanum – og hvetja aðrar deildir og íþróttagreinar til að skoða eigin aðgerðir,“ segir hann og nefnir að í mörgum löndum hafi veðmálavæðing orðið til þess að trúverðugleiki úrslita er í hættu.

„Því miður eru dæmi um að leikmenn, dómarar og aðrir innan íþróttanna hafa tekið við mútum eða ábendingum um að hagræða úrslitum. Okkur sem höfum metnað og ástríðu fyrir íslenskum íþróttum er ljóst að við megum ekki láta þetta gerast hér,“ segir hann og vísar svo í fyrrnefnda könnun sem ÍTF gerði. Segir hann að skoðaðar hafi verið fyrirmyndir erlendis og lausn fundist í Svíþjóð sem aðlöguð verður að Íslandi.

Fengið mjög jákvæð viðbrögð

„Þar hefur verið þróuð fræðsla fyrir leikmenn um hagræðingu úrslita og ábyrga þátttöku í veðmálum. Fræðslan er gagnvirk, krefst þess að spurningum sé svarað og tryggir þannig að leikmenn tileinki sér efnið. Þessi fræðsla hefur nú verið þýdd á íslensku og aðlöguð að reglugerðum hérlendis,“ segir hann og bætir við að fræðslan skiptist í tvo hluta. Annars vegar um hagræðingu úrslita, hvað það er, hvernig hún á sér stað og hvers vegna hún eyðileggur íþróttina, og hins vegar um ábyrga þátttöku í veðmálum, áhættu, einkenni spilafíknar og hvar hægt sé að leita sér hjálpar.

„Allt efnið er aðgengilegt á netinu fyrir leikmenn, bæði í síma og tölvu, svo leikmenn geti farið í gegnum fræðsluna þegar þeim hentar. Við höfum þegar kynnt efnið fyrir liðunum og fengið mjög jákvæð viðbrögð,“ segir hann og bætir við að áætlunin til framtíðar sé að gera eins og Svíar, það er að fræðslan verði skylda fyrir alla leikmenn sem vilja spila á efsta stigi í knattspyrnu á Íslandi. Þannig sé tryggt að allir sem stíga inn á völlinn hafi skýra mynd af áhættunni og ábyrgðinni.

„Við hjá Íslenskum toppfótbolta viljum standa vörð um trúverðugleika íþróttanna. Við viljum að fólk geti treyst því að úrslit ráðist á vellinum – ekki í símtali eða skilaboðum fyrir leik.

Ég hvet því alla sem starfa innan íþróttahreyfingarinnar til að taka þátt í þessari umræðu og skoða hvaða ráðstafanir þeir geta gert í sínum greinum. Þetta snýst ekki bara um knattspyrnu, þetta snýst um heiðarleika, heilbrigði og framtíð íþróttanna á Íslandi.

Við verðum að spila rétt úr stöðunni,“ segir hann að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Búast við um 6 þúsund manns í Laugardalinn

Búast við um 6 þúsund manns í Laugardalinn
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Arnari aldrei liðið eins vel með leikmannahóp – „Æfingarnar eru búnar að vera stórkostlegar“

Arnari aldrei liðið eins vel með leikmannahóp – „Æfingarnar eru búnar að vera stórkostlegar“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Dagur skrifar undir hjá Val – Klárar tímabilið í Kópavogi

Dagur skrifar undir hjá Val – Klárar tímabilið í Kópavogi
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Vill ekki ræða viðræðurnar við KSÍ – „Ætla ekki að setja allt í háaloft“

Vill ekki ræða viðræðurnar við KSÍ – „Ætla ekki að setja allt í háaloft“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

United reynir að losna við Onana á næstu dögum

United reynir að losna við Onana á næstu dögum
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Real Madrid ætlar að blanda sér í baráttuna um Guehi

Real Madrid ætlar að blanda sér í baráttuna um Guehi
433Sport
Í gær

Mo Salah veður í stuðningsmenn Liverpool sem settu inn umdeilda færslu

Mo Salah veður í stuðningsmenn Liverpool sem settu inn umdeilda færslu
433Sport
Í gær

Sturluð upphæð sem Ten Hag og hans nánustu hafa fengið eftir að hafa verið reknir í tvígang

Sturluð upphæð sem Ten Hag og hans nánustu hafa fengið eftir að hafa verið reknir í tvígang