fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
433FréttirSport

Sumir gesta á HM þurfa að búa í gámum – Vatnið brúnt og hitinn óbærilegur

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir
Þriðjudaginn 22. nóvember 2022 19:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hafa heyrst margar óánægjuraddir með skipulag heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í Katar. Bjórumræðan til að mynda hávær enda hafa gestir HM verið vanir að geta hellt mjöð í sig að vild á fyrri mótum.

Skortur á bílastæðum fyrir rútur við leikvelli, skortur á merkingum við almenningssamgöngur svo og á sjálfum leikvöllunum hafa ruglað gesti í ríminu.

Margir segja að yfirvöld hafi hafið undirbúning allt of seint enda hefur ríkið aldrei tekist á við viðburð af þessari stærðargráðu. Íbúar í Katar eru aðeins tæpar þrjár milljónir en gestir HM eru ein milljón.  Þrátt fyrir að eyða gríðarlegum fjárhæðum í undirbúning, meðal annars með byggingu nýrrar borgar, er margt sem ekki náðist.

Til að mynda að tryggja húsnæði undir alla gestina en það var á endanum ljóst að það myndi aldrei takast í tíma.

Því var gripið til ýmissa aðgerða, meðal annars að búa til ,,þorp” gáma á einhverju sem virðist hafa verið bílastæði. Og þótt að mótið sé hafið eru verkamenn enn að koma upp gámum.

Blaðamaður á vegum breska blaðsins The Sun fékk inni í einum slíkum gámi og segir ekki farir sínar sléttar.

Í hverjum gámi er eitt rúm, náttborð, salerni, vaskur og sturta, og kostar aðstaðan 175 pund á nótt eða rétt tæplega 27 þúsund krónur íslenskar.

Það er gat á einum veggnum hugsað var fyrir loftræstkerfi en verkið var ekki klára og stóð loftræstigræjan ótengd á gólfi gámsins. Hitinn í gámnum fer upp í 40 gráður og kvörtuðu margir viðmælendur og nágrannar blaðamannsins yfir að geta ekki sofið vegna hita.

Blaðamanninum tókst þó að koma græjunni af stað en hávaðinn er óbærilegur og fer hitinn aldrei niður fyrir 31 gráður.

Vatnið í sturtunni er brúnt og sjóðandi heitt.

Það er fátt um fína drætti hvað mat varðar en þó var hægt að fá litla pepperoni pizzu. Það voru fjórar sneiðar af pepperoni á  pizzunni sem kostar um 2500 krónur íslenskar, sem Bretum finnst út úr kú.

At least there was ice cream to help you cool offÞað er aftur á móti hin fínasta ísbúð við svæðið og er hún mikið sótt af sveittum íbúum gámanna sem að mestu sætta sig við aðstæður.

Þetta er jú HM.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Samtal Liverpool við enska landsliðsmanninn heldur áfram í vikunni

Samtal Liverpool við enska landsliðsmanninn heldur áfram í vikunni
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Valinn besti leikmaður liðsins en vill nú fara – Alls ekki hrifinn af nýja stjóranum

Valinn besti leikmaður liðsins en vill nú fara – Alls ekki hrifinn af nýja stjóranum
433Sport
Í gær

Óttast ekki að missa sæti sitt ef Williams kemur í sumar

Óttast ekki að missa sæti sitt ef Williams kemur í sumar