fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Sport

Léleg skotnýting felldi Ísland

Máttu ekki við ósigri gegn Sviss

Ritstjórn DV
Laugardaginn 10. september 2016 17:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska landsliðið í körfuknattleik karla tapaði í dag sínum öðrum leik í röð í undakeppni EM. Liðið lék við Sviss á útivelli en Íslendingar unnu öruggan sigur á liðinu í Laugardalshöll á dögunum. Nú snerist dæmið við.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik þó Íslendingar væru yfirleitt með nauma forystu. Í þeim síðari hallaði undan fæti. Sviss náði mest 11 stiga forystu í síðari hálfleik. Áhlaup Íslendinga hófst of seint en liðið var með afleita nýtingu utan þriggja stiga línunnar lengst af í leiknum. Í blálokin fór liðið að hitta en minnkaði muninn aðeins niður í þrjú stig áður en yfir lauk. Lokatölur urðu 83-80, Sviss í vil.

Varamaðurinn Elvar Friðriksson lék manna best í íslenska liðinu auk þess sem Haukur Helgi Pálsson var góður framan af leik. Lykilmenn eins og Jón Arnór Stefánsson og Hörður Axel Vilhjálmsson áttu slakan dag – það munar um minna.

Með sigri hefði risaskref unnist í átt að því að tryggja liðinu sæti á EM næsta haust en allt kom fyrir ekki. Ísland er í öðru sæti riðilsins með 4 stig eftir 4 leiki en Sviss vann í dag sín fyrstu tvö stig. Belgar leiða riðilinn með 8 stig, fullt hús. Kýpur heur 2 stig. Ísland á eftir að leika við Belgíu og Kýpur hér heima.

Efsta liðið í riðlinum kemst beint á EM auk fjögurra liða sem hafna í öðru sæti riðlanna sex. Ósigurinn í dag veikir stöðu Íslands til muna, þó nóttin sé ekki úti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Samfélagsmiðlastjarnan rak stjórann strax úr starfi – Ræður Andy Carroll inn í staðinn

Samfélagsmiðlastjarnan rak stjórann strax úr starfi – Ræður Andy Carroll inn í staðinn
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Arne Slot mjög ósammála fullyrðingum Carragher

Arne Slot mjög ósammála fullyrðingum Carragher
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Forsetinn gefur blessun sína – Vilja kaupa stórstjörnu sem Liverpool hefur einnig áhuga á

Forsetinn gefur blessun sína – Vilja kaupa stórstjörnu sem Liverpool hefur einnig áhuga á
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Love Island-stjarna fullyrðir að erfitt sé að fá starf eftir þátttöku í þáttunum – Segir að þetta sé ástæðan

Love Island-stjarna fullyrðir að erfitt sé að fá starf eftir þátttöku í þáttunum – Segir að þetta sé ástæðan