fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Landssambands veiðifélaga um fjarlægðarmörk sjókvíaeldis

Gunnar Bender
Þriðjudaginn 14. janúar 2020 16:19

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landssamband veiðifélaga mótmælir harðlega þeirri fyrirætlan sjávarútvegs- oglandbúnaðarráðherra að fella brott ákvæði gildandi fiskeldisreglugerðar um bann við sjókvíaeldi á friðunarsvæði við ósa laxveiðiáa. Ráðherra hefur haldið því fram að lögfesting áhættumats erfðablöndunar tryggi vernd laxastofna með sama hætti og reglugerðarákvæðið hefur gert allt frá því það var sett árið 1988. Það er fyrirsláttur. Það er augljóst að með þessari breytingu er ráðherra að tryggja að ekkert fái stöðvað áform um laxeldi á gildandi friðunarsvæði Langadalsár og Hvannadalsár í Ísafjarðardjúpi. Þá opnar þessi breyting á eldi í næsta nágrenni við árnar i Eyjafirði, svo sem Fnjóská þar sem þessi fjarlægðarmörk skipta miklu máli.

Hafa verður í huga að áhættumat erfðablöndunar tekur að lögum einvörðungu til mögulegrar erfðamengunar af völdum laxeldis. Aðrir áhættuþættir svo sem sjúkdómahætta og laxalús eru ekki þættir sem meta á í áhættumati erfðablöndunar samkvæmt lögum um fiskeldi. Vert er að benda á að samkomulag um fyrirkomulag áhættumatsins var svikið með því að lögfesta að taka ætti tillit til mótvægisaðgerða fiskeldisfyrirtækjanna en ekki áhrifa af lús og sjúkdómum. Varðandi þessa þætti skiptir fjarlægðarverndin öllu máli.

Landssambandið undrast því ummæli sviðsstjóra fiskeldis hjá Hafrannsóknarstofnun um að áhættumatið taki á þessum þáttum. Landssambandið telur nauðsynlegt að núverandi regla um bann við sjókvíaeldi á friðunarsvæðum í námunda við laxveiðiár verði áfram í nýrri reglugerð
um fiskeldi.

Það er augljóst að með þessari breytingu er ráðherra að veikja varnir þeirra laxastofna sem friðunarákvæðin taka nú til í reglugerð og eru yfirlýsingar hans um að ekki sé verið að gefa afslátt af kröfunni um vörn fyrir villta laxastofna á Íslandi því fráleitar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Liverpool gæti íhugað sölu – Áhugi frá Ítalíu

Liverpool gæti íhugað sölu – Áhugi frá Ítalíu
Eyjan
Fyrir 3 klukkutímum

Jón Örn í eigendahóp Markarinnar lögmannsstofu

Jón Örn í eigendahóp Markarinnar lögmannsstofu
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Allt vitlaust í kringum Íslendingaliðið eftir gærdaginn – „Höfum haft hausinn uppi í rassgatinu á okkur“

Allt vitlaust í kringum Íslendingaliðið eftir gærdaginn – „Höfum haft hausinn uppi í rassgatinu á okkur“
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust