fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025

Veiðisvæðið hefur stækkað verulega á Lýsunni

Gunnar Bender
Mánudaginn 12. ágúst 2019 10:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

,,Það eru nokkrar bleikjur hérna en flestar litlar. Það er ein og ein væn hérna rétt fyrir neðan i hylnum,“ sagði María Gunnarsdóttir sem var á veiðislóðum á Vatnasvæði Lýsu fyrir nokkrum dögum. En veiðisvæðið hefur heldur betur verið stækkað á Lýsunni og ná niður í ós eftir 10 ára lokun.

,,Við höfum aldrei veitt hérna áður en þetta er skemmtilegt svæði. Höfum aðeins séð  fiska en þeir eru tregir ennþá. Fyrr í sumar fórum við í Gljúfurá í Húnavatnssýslu og förum þangað seinna í sumar. Já, veiðin svo fjölbreytt,“ sögðu tveir ungir veiðimenn sem köstuðu flugunni fimlega á svæðinu en fiskurinn ekki í tökustuði.

,,Það er bara kominn einn lax á land en veiðimenn hafa séð laxa víða um svæðið,“ sagði Þór Fannberg Gunnarsson veiðivörður um stöðuna á svæðinu þegar spurt var um laxinn. En mikið hefur veiðst af silungi, stórum og smáum.

 

Myndir. Frá Vatnasvæði Lýsu fyrir skömmu. Myndir G.Bender

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Þorsteinn spurður út í háværar sögusagnir

Þorsteinn spurður út í háværar sögusagnir
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Græðir þú á árangri landsliðsins?

Græðir þú á árangri landsliðsins?
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Segir stjórnarandstöðuna leggja fæð á Ingu Sæland og hindra framfaramál með botnlausu málþófi

Segir stjórnarandstöðuna leggja fæð á Ingu Sæland og hindra framfaramál með botnlausu málþófi
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Tottenham reynir að kaupa Ganverjann

Tottenham reynir að kaupa Ganverjann
Eyjan
Fyrir 11 klukkutímum

Orðið á götunni: Fá milljarð gefins á ári en greiða 282 milljónir í veiðigjöld

Orðið á götunni: Fá milljarð gefins á ári en greiða 282 milljónir í veiðigjöld
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða