fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024

Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri

Gunnar Bender
Miðvikudaginn 13. mars 2019 10:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri, sem í ár verður í samvinnu við verslunina Hlað, verður haldin laugardaginn 16. og sunnudaginn 17. mars 2019 frá kl. 11–18 í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 Stokkseyri.

Hjálmar í Hlað og félagar sýna úrval skotvopna og búnað til skotveiða ásamt sjónaukum og aukabúnaði. Fjölbreytt úrval skotvopna verður til sýnis, haglabyssur, rifflar, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu tengdu skotveiðum m.a úr einkasöfnum.

Hartmut Liedtke verður á staðnum með sérstaka kynningu á sjónaukum frá Blaser í Þyskalandi sem er nýjung hérlendis. Kynntir verða rifflar frá Blaser, Sauer, haglabyssur frá Marocchi og Blaser, einnig sjónaukar frá Zeiss og Meopta ásamt hljóðdeyfum frá Hausken, Devik og Freyr, endurhleðsluvörum frá Hornady, Redding, Lyman, Berger Bullets og fl.

Skotvís verður með kynningu á sinni starfsemi og Bogveiðifélag Íslands verður einnig með kynningu á sinni starfsemi og sýnir búnað tengdum bogveiðum ofl. Gestur byssusýningar í ár er Óskar Elías Sigurðsson uppstoppari frá Vestmannaeyjum. Hann verður með kynningu á sínum verkum og verðu þar margt fallegt að sjá af uppstoppuðum dýrum.

Einnig verða til sýnis skotvopn og munir frá Sverri Scheving Thorsteinssyni, Sigurði Ásgeirssyni, Einari frá Þverá, Sveini Einarssyni frv.veiðistjóra, Sigmari B. Haukssyni og Drífu-haglabyssur frá Jóni Björnssyni heitnum frá Dalvík svo eitthvað sé nefnt.

Byssusýning Veiðisafnsins er landsþekkt og er aldrei eins á milli ára og sýningin í ár er þar engin undantekning. Allt áhugafólk um skotvopn og veiðar er velkomið, aðgangseyrir er kr.1500.- fullorðnir og 750.- kr. börn 6-12 ára.

Nánari upplýsingar má sjá: www.veidisafnid.is www.hlad.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Söngkona rýfur þögnina – Sögð föst í ástarþríhyrning með móður sinni

Söngkona rýfur þögnina – Sögð föst í ástarþríhyrning með móður sinni
433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Sancho skráði sig á spjöld sögunnar um helgina – „Súrsætt“

Sancho skráði sig á spjöld sögunnar um helgina – „Súrsætt“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Opinbera hvers vegna Salah og Klopp rifust um helgina

Opinbera hvers vegna Salah og Klopp rifust um helgina
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Sigurður Orri nýr framkvæmdastjóri Húseigendafélagsins

Sigurður Orri nýr framkvæmdastjóri Húseigendafélagsins
Eyjan
Fyrir 5 klukkutímum

Segir forsetaframboðið ekki vera viðbrögð við því að leggja eigi starfið hennar niður

Segir forsetaframboðið ekki vera viðbrögð við því að leggja eigi starfið hennar niður
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Brast í grát er hann kvaddi í dag – Myndband

Brast í grát er hann kvaddi í dag – Myndband
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Veðrið hefur leikið við höfuðborgarbúa en það breytist um miðja vikuna

Veðrið hefur leikið við höfuðborgarbúa en það breytist um miðja vikuna
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Þetta verður stærsta verkefni Slot hjá Liverpool

Þetta verður stærsta verkefni Slot hjá Liverpool