fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
Pressan

Raunveruleikastjarna ákærður fyrir barnaníð – Viðurkenndi að hafa ekki haft góðan ásetning

Pressan
Sunnudaginn 22. mars 2026 11:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir þá sem ekki kannast við Duggar fjölskylduna þá urðu þau fræg þegar raunveruleikaþættirnir 19 Kids and Counting hófu göngu sína árið 2008. Þættirnir fjölluðu um hjónin Jim og Michelle Duggar og börnin þeirra 19, en þættirnir hétu fyrst 17 Kids and Counting en breyta þurfti nafni þeirra eftir því sem bættist í hópinn.

Þættirnir fjölluðu um daglegt líf fjölskyldunnar, en meðlimir hennar eru strangtrúaðir baptistar, og snerist líf fjölskyldunnar því oft um gildi á borð við hreinleika, hógværð og guð.

Frá því að þættirnir voru í sýningu hefur Duggar-fjölskyldan heldur betur fallið í ónáð, er þá skemmst að minnast þess þegar elsti sonurinn, Josh Duggar, var handtekinn árið 2021 fyrir vörslu á barnaníðsefni og í kjölfarið dæmdur í rúmlega 12 ára fangelsi. Fjórar systur hans hafa eins sakað hann um að hafa misnotað þær þegar þær voru börn.

Nú hefur yngri bróðir hans, Joseph, verið ákærður fyrir barnaníð en People greinir frá því að Joseph hafi játað að hafa misnotað 9 ára stúlku í símtali við föður þolanda og rannsóknarlögreglumann. Joseph mun hafa gengist við því í símtalinu að hafa snert þolanda utanklæða með óviðeigandi hætti og að ásetningur hans hafi ekki verið góður.

Sjá einnig: Ætlar ekki að skilja við manninn sinn, þrátt fyrir barnaníðsefnið

Joseph gekk að eiga eiginkonu sína, Kendru, í áðurnefndum þáttum og eiga þau fjögur börn saman. Kendra hefur einnig verið ákærð í málinu fyrir að hafa stofnað velferð og heilsu ólögráða barns í hættu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Átta ára drengur myrtur og brenndur – Stjúpmóðirin ákærð

Átta ára drengur myrtur og brenndur – Stjúpmóðirin ákærð
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Hefur þú tekið eftir svörtu blettunum á framrúðunni? – Þeir gegna mikilvægu hlutverki

Hefur þú tekið eftir svörtu blettunum á framrúðunni? – Þeir gegna mikilvægu hlutverki
Pressan
Í gær

Kom dómsalnum í opna skjöldu þegar hún játaði hvað hún gerði foreldrum sínum fyrir 15 árum

Kom dómsalnum í opna skjöldu þegar hún játaði hvað hún gerði foreldrum sínum fyrir 15 árum
Pressan
Í gær

Dularfull veðmál í kringum drápið á Khameini og ránið á Maduro – Græddu þeir milljónir á innherjaupplýsingum?

Dularfull veðmál í kringum drápið á Khameini og ránið á Maduro – Græddu þeir milljónir á innherjaupplýsingum?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kona dæmd í fangelsi fyrir að saka tíu karla ranglega um nauðgun – Misstu vinnu og umgengni við börn sín

Kona dæmd í fangelsi fyrir að saka tíu karla ranglega um nauðgun – Misstu vinnu og umgengni við börn sín
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dyggur stuðningsmaður Pútíns snýst gegn honum í fordæmalausri yfirlýsingu

Dyggur stuðningsmaður Pútíns snýst gegn honum í fordæmalausri yfirlýsingu