
Samkvæmt viðaukanum mega áhafnarmeðlimir nú vísa farþegum, sem leika tónlist, spila tölvuleiki eða myndbönd, eða eitthvað með hljóði frá borði ef þeir nota ekki heyrnartól.
CBS News skýrir frá þessu og segir að auk þess að heimila að farþegum verði vísað frá borði, þá geti þeir einnig lent á lista félagsins yfir þá sem ekki fá að ferðast með því.
Þetta kunna að þykja ansi strangar reglur og afleiðingarnar af því að nota ekki heyrnartól geta orðið dýrkeyptar.
Ef farþegar gleyma að taka heyrnartól með sér, mun United bjóða þeim að fá ókeypis sett.