

Ted Sarandos, aðstoðarforstjóri Netflix, neitar að eiga símtöl við Meghan Markle nema lögmaður sé viðstaddur.
Í frétt í Variety fyrr í vikunni fullyrða þrír heimildarmenn að að Sarandos sé þreyttur á Markle og Harry Bretaprins. Tveir heimildarmenn segja Sarandos hafa látið þau orð falla að hann myndi ekki eiga símtal við Markle nema hafa lögmann sinn viðstaddan. Heimildarmennirnir sögðu þó óljóst hvort Sarandos væri alvara eða hvort hann væri að grínast.

Talsmaður Netflix sagði við Variety að fullyrðingarnar væru „algjörlega ónákvæmar“. Lögmaður Markle, Michael J. Kump, endurtók þessa yfirlýsingu í bréfi til miðilsins og sagði: „Þetta er augljóslega rangt. Reyndar sendir Meghan reglulega sms-skilaboð og talar við Sarandos og hefur farið heim til hans, án lögfræðinga.“
Einnig bentu heimildarmenn hjá Netflix á að Sarandos og eiginkona hans, Nicole Avant, eigi oft í samskiptum við Markle og Harry sem eru nágrannar þeirra í Montecito í Kaliforníu. Markle og Harry eigi einnig í frábæru samstarfi við Sarandos.

Fréttin frá Variety varpaði einnig ljósi á samband Sussex-hjónanna við Bela Bajaria, yfirmann hjá Netflix, sem er sögð hafa orðið þreytt á samningi streymisveitunnar við hjónin. Hún hrósaði þó hjónunum.
„Archewell hefur verið hugulsamur og samvinnuþýður samstarfsaðili og við höfum notið þess virkilega að vinna með Harry og Meghan,“ sagði hún við Variety. „Þau taka virkan þátt í ferlinu og koma með einstakt, alþjóðlegt sjónarhorn sem samræmist þeim áhrifamiklu verkefnum sem meðlimir okkar bregðast við.“
Markle og Harry gerðu upphaflega 100 milljóna dollara samning við Netflix árið 2020. Í ágúst skrifuðu þau undir nýjan samning við streymisveituna upp á lægri upphæð. Fyrr í þessum mánuði sleit Netflix samstarfi við lífsstílsmerki Markle, As Ever, eftir að tveggja þátta þáttaröð hennar With Love, Meghan var tekin af streymisveitunni vegna minnkandi áhorfs.

Hjónin eru enn með samning við Netflix í gegnum framleiðslufyrirtæki sitt, Archewell Productions. Heimildarmaður sagði Page Six að samningurinn væri í góðum málum og að fjölmörg handrituð og verkefni væru í þróun.
