fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
Pressan

Ákærð fyrir morð eftir að hafa tekið lyf sem framkallaði fósturlát

Pressan
Föstudaginn 20. mars 2026 10:54

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrjátíu og eins árs kona í Georgíu-ríki í Bandaríkjunum hefur verið ákærð fyrir morð eftir að hún tók lyf til að framkalla fósturlát.

Í frétt AP kemur fram að málið gæti orðið eitt það fyrsta sinnar tegundar í ríkinu frá því að ný og strangari þungunarrofslöggjöf tók gildi árið 2019 og bannaði flestar slíkar aðgerðir eftir að hjartsláttur fósturs verður greinanlegur.

Samkvæmt handtökuskipun sem lögreglan í Kingsland gaf út er konan, Alexia Moore, grunuð um að hafa verið gengin lengra en sex vikur með barn sitt þegar hún tók lyf sem notað er til að framkalla fósturlát.

Dómsgögn sýna að Moore leitaði á sjúkrahús 30. desember vegna kviðverkja. Þar greindi hún frá því að hafa tekið lyfið misóprostól, sem notað er við þungunarrof, auk verkjalyfsins oxykódóns. Moore er sögð hafa fætt fóstrið og lifði það í stutta stund eftir fæðinguna.

Málið hefur vakið töluverða athygli og gagnrýni meðal réttindasamtaka. Dana Sussman, talsmaður samtakanna Pregnancy Justice, sagði í yfirlýsingu að enginn ætti að sæta refsingu fyrir að gangast undir þungunarrof og lýsti ákærunni sem fordæmalausri.

Lög í Georgíu banna þungunarrof eftir að hjartsláttur mælist, sem er yfirleitt um sex vikum eftir getnað – oft áður en konur gera sér grein fyrir að þær séu þungaðar. Moore hefur setið í gæsluvarðhaldi í Camden-sýslu síðan 4. mars, ákærð bæði fyrir morð og vörslu fíkniefna samkvæmt opinberum fangelsisskrám.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Komu að heimilinu ónýtu eftir ferðalag – „Ég syrgi minningarnar“

Komu að heimilinu ónýtu eftir ferðalag – „Ég syrgi minningarnar“
Pressan
Í gær

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tók DNA-próf hjá Ancestry til að fræðast um ættir sínar – Það átti eftir að varpa ljósi á ótrúleg mistök

Tók DNA-próf hjá Ancestry til að fræðast um ættir sínar – Það átti eftir að varpa ljósi á ótrúleg mistök
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hefur búið í bakpoka í 5 ár – Hefur ferðast til 32 landa og deilir ódýrum ferðaráðum

Hefur búið í bakpoka í 5 ár – Hefur ferðast til 32 landa og deilir ódýrum ferðaráðum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn á Suður-Tenerife skelfingu lostnir eftir að maður ógnaði þeim með byssu

Ferðamenn á Suður-Tenerife skelfingu lostnir eftir að maður ógnaði þeim með byssu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Háttsettur embættismaður segir af sér og segir að Trump hafi verið plataður í stríð – „Þetta var lygi“

Háttsettur embættismaður segir af sér og segir að Trump hafi verið plataður í stríð – „Þetta var lygi“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Par dæmt í fangelsi fyrir að eltihrella þroskahamlaðan starfsmann kjúklingastaðar

Par dæmt í fangelsi fyrir að eltihrella þroskahamlaðan starfsmann kjúklingastaðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Heilahimnubólga veldur ótta í háskólabæ – Tveir látnir og ellefu alvarlega veikir

Heilahimnubólga veldur ótta í háskólabæ – Tveir látnir og ellefu alvarlega veikir