fbpx
Þriðjudagur 03.febrúar 2026
Pressan

Lát Alex Pretti úrskurðað sem manndráp

Pressan
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 10:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andlát Alex Pretti, sem var skotinn til bana af tolla- og innflytjendaeftirlitinu ICE í Minnesota, var úrskurðað sem manndráp af réttarmeinafræðingnum sem framkvæmdi krufninguna. Frá þessu greinir TMZ sem hefur skýrslu réttarmeinafræðingsins undir höndum.

Samkvæmt skýrslunni var um manndráp að ræða. Pretti hafi verið skotinn af lögreglufulltrúum og hafi fjöldi skotsára dregið hann til bana.

Pretti hefði fagnað 38 ára afmæli sínu í næsta mánuði. Hann var skotinn til bana þann 26. október þegar hann reyndi að aðstoða konu sem ICE-fulltrúi hafði hrint í jörðina. Pretti var með skotvopn á sér sem hann hafði aflað og átt með löglegum hætti. Samkvæmt lögum í Minnesota hafa íbúar rétt til að bera vopn. ICE hefur haldið því fram að fulltrúar eftirlitsins hafi óttast um líf sitt og því skotið Pretti í sjálfsvörn. Myndbönd sem voru tekin upp á vettvangi benda þó til þess að Pretti hafi aldrei tekið upp vopnið heldur hafi ICE þvert á móti tekið vopnið af honum og svo skotið hann þar sem hann lá á jörðinni.

Lögreglan í Minnesota hefur rekið á sig á veggi við rannsókn málsins. Fyrst taldi heimavarnaráðuneytið sig hafa lögsögu í málinu og neitaði að afhenda lögreglunni í Minnesota mikilvæg gögn á borð við upptökur búkmyndavéla. Eftir mikil mótmæli og óeirðir hefur rannsóknin þó verið færð til alríkislögreglunnar og tveir ICE-fulltrúar, sem áttu hlut að máli, verið sendir í leyfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Vann í lottóinu og breytti húsinu sínu í dópverksmiðju – Fékk þungan dóm

Vann í lottóinu og breytti húsinu sínu í dópverksmiðju – Fékk þungan dóm
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fangaverðir dauðþreyttir á stælunum í Kohberger og vilja hann burt úr fangelsinu

Fangaverðir dauðþreyttir á stælunum í Kohberger og vilja hann burt úr fangelsinu