fbpx
Mánudagur 16.febrúar 2026
Pressan

Rannsókn vekur spurningar: Genin virðast ráða meiru en þú heldur

Pressan
Mánudaginn 2. febrúar 2026 06:00

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hversu lengi fólk lifir kann að ráðast meira af erfðum en áður hefur verið talið, samkvæmt nýrri alþjóðlegri rannsókn á langlífi sem birt var í vísindaritinu Science á fimmtudag.

Rannsóknin bendir til að arfgengir þættir kunni að skýra meira en helming þess breytileika sem sést í lífslengd fólks, sem er talsvert hærra hlutfall en áður var talið.

Rannsóknarteymið, undir forystu Uri Alon við Weizmann-vísindastofnunina í Ísrael, greindi umfangsmikil gögn um dánartíðni tvíbura og systkina langlífra einstaklinga. Þar á meðal var notast við gömul gögn frá Danmörku, Svíþjóð og Bandaríkjunum.

Í rannsókninni voru dauðsföll sem ekki tengdust beint öldrun, þar á meðal sýkingar og slys, síuð frá til að einangra áhrif líffræðilegrar öldrunar

Niðurstöðurnar benda til þess að þegar slík dauðsföll eru síuð frá komi erfðir fram sem ráðandi breyta. Höfundar rannsóknarinnar leggja þó áherslu á að lífsstíll skipti enn máli, en áhrif hans séu fremur á jaðrinum.

Uri Alon áætlar að heilsusamlegar eða óheilsusamlegar venjur geti hliðrað lífslíkum um að jafnaði fimm ár í hvora átt. Einstaklingur með erfðafræðilegt „þak“ í kringum 80 ár gæti þannig náð um 85 ára aldri með afar heilbrigðum lífsháttum, en dregið úr lífslíkum niður í um 75 ár með óheppilegum venjum.

Faraldsfræðingurinn S. Jay Olshansky, sem kom ekki að rannsókninni, segir niðurstöðurnar minna á að fólk hafi minni stjórn á eigin lífslengd en almennt er talið. Að hans mati krefst mjög hár aldur gjarnan þess að einstaklingar hafi unnið í erfðalottóinu við fæðingu.

Sérfræðingar eru þó ekki einhuga um hversu afgerandi ályktanir megi draga. Sumir fræðimenn telja niðurstöðurnar í samræmi við þekkingu úr rannsóknum á öðrum lífverum, þar sem lífslengd hefur reynst mjög erfðabundin. Aðrir vara hins vegar við því að erfitt sé að aðskilja með skýrum hætti innri líffræðilegar dánarorsakir frá áhrifum umhverfis og lífsstíls.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Kíktu á hendur hans á fyrsta stefnumóti – Þær segja þér allt

Kíktu á hendur hans á fyrsta stefnumóti – Þær segja þér allt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hefur getnaðarvarnarpillan áhrif á rómantíkina?

Hefur getnaðarvarnarpillan áhrif á rómantíkina?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna áttu að setja kaffikorg í klósettið

Þess vegna áttu að setja kaffikorg í klósettið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn – Kaffi og te eru nánast eins og skjöldur gagnvart þessum sjúkdómum

Ný rannsókn – Kaffi og te eru nánast eins og skjöldur gagnvart þessum sjúkdómum