
Ekki batnar staðan hjá fyrrum hertogaynjunni Söruh Ferguson eftir að bandaríska dómsmálaráðuneytið birti enn einn gagnapakkann úr Epstein-skjölunum á föstudaginn. Þar má finna fjölda tölvupósta sem gengu á milli Ferguson og níðingsins Jeffrey Epstein sem sýna að þau voru perluvinir.
Árið 2009 sendi Ferguson vini sínum Epstein tölvupóst þar sem hún benti honum á möguleg viðskiptatækifæri. Þar tekur Ferguson fram að hún hafi aldrei verið jafn upp með sér og þegar Epstein hrósaði henni fyrir framan dætur hennar.
„Takk Jeffrey fyrir að vera bróðirinn sem mig hefur alltaf dreymt um.“
Ferguson er óspar á hrósin til vinar síns. Árið 2010 sendi hún tölvupóst þar sem hún sagði meðal annars: „Þú ert goðsögn. Ég á engin orð til að lýsa ást minni og þakklæti fyrir gjafmildi þína og góðmennsku. Ég er til þjónustu reiðubúin. Gifstu mér bara.“
Epstein var meðvitaður um það hversu vænt Ferguson þótti um hann. Árið 2008 gerði hann sátt við yfirvöld eftir að hann hafði verið ásakaður um kynferðisbrot gegn unglingsstúlkum. Hann játaði sök fyrir vægari brot en barnaníð og afplánaði 13 mánuði í fangelsi. Árið 2011 ætlaði hann greinilega að hreinsa nafn sitt og var í samskiptum við almannatengil sinn, Mike Sitrick. Sitrick lagði þá til að þeir fengju fjölmiðla til að hætta að kalla Epstein barnaníðing. Ein leiðin til að fá það í gegn væri að fá aðstoð Ferguson. Ferguson hafði þá kallað Epstein barnaníðing opinberlega en hún sendi vini sínum tölvupóst þar sem hún sagðist aldrei ætla að kalla hann slíkt aftur og að eina ástæðan fyrir því að hún hefði gert það á sínum tíma var til að vernda hennar eigið mannorð og vörumerki.
Ferguson er nú eins gagnrýnd fyrir að tala með ósmekklegum hætti um dóttur sína, Eugenie. Árið 2010 sendi hún Epstein tölvupóst þar sem hún sagðist vera að bíða eftir að dóttirin, sem þá var um tvítugt, kæmi heim af „helgar-ríðeríi“ (e. shagging weekend), en slíkt orðalag um jafn unga konu þykir mörgum ekki hafa verið við hæfi, einkum í ljósi þess að þá hafði Epstein verið sakaður um kynferðisbrot gegn unglingsstúlkum.
BBC bendir á að þó að Ferguson hafi reynt að vera Epstein traustur vinur þá virðist það ekki hafa verið gagnkvæmt. Epstein hafi baktalað Ferguson í samskiptum við aðra. Til dæmis hafi hann sent ónefndum viðtakanda mynd sem birtist af Ferguson árið 2011 og tekið fram að myndin væri ekki hugguleg.
Fyrrum eiginmaður Ferguson, Andrés Mountbatten-Windsor, var líka mikill vinur Epsteins og var fyrir skömmu sviptur konunglegum titlum sínum fyrir vikið. Ferguson fékk líka á sig skellinn og var gert að yfirgefa heimili sitt, konunglega húsnæðið Royal Lodge, þar sem hún hafði búið ásamt fyrrverandi eiginmanni sínum og dætrum þrátt fyrir skilnaðinn. Ferguson hefur enn ekki rýmt húsnæðið, en að sögn breskra miðla er hún ekki enn búin að finna sér nýtt húsnæði.
Árið 2011 virðist Ferguson hafa séð í gegnum vinskap sinn við Epstein en þá sendi hún honum: „Þú hefur horfið. Ég vissi ekki einu sinni að þú værir að eignast barn. Mér er það nú svooooo ljóst að þú vingaðist aðeins við mig til að komast að Andrési. Og það særði mig virkilega djúpt. Meira en þú mun nokkru sinni vita.“