fbpx
Mánudagur 16.mars 2026
Pressan

Fimm ára fangelsi fyrir athugasemd á samfélagsmiðli

Pressan
Laugardaginn 31. janúar 2026 11:30

Rithöfundurinn Viktor Shenderovich útataður í tómatssósu/Skjáskot úr myndbandi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússneskur karlmaður hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi, og mánuði betur, fyrir athugasemd sem hann skrifaði á samfélagsmiðilinn Telegram. Í maí 2023 skrifaði Andrey Gneushev á rás á áðurnefndum miðli þar sem hann hrósaði aktívistanum Vladislav Shipitsyn fyrir þann gjörning að skvetta tómatsósu á rússneska rithöfundinn Viktor Shenderovich þegar hann var að kynna verk sín í Litháen. Ástæðan var sú að Shenderovich, hafði að mati Shipitsyn, ekki staðið sig nægilega vel í því að gagnrýna rússnesk stjórnvöld fyrir innrásina í Úkraínu. Þetta kemur fram á vef rússnesku mannréttindasamtakanna OVD. 

Þar kemur fram að þetta hafi Andrey Gneushev kunnað vel að meta og skrifaði færslu þar sem hann fordæmdi það hatur sem einstaklingum og samtökum væri sýnt sem að þyrðu að standa upp í hárinu á rússneskum stjórnvöldum. Til að mynda eins og áðurnefndum Vladislav Shipitsyn og meðlimum RVC (Russian Volunteer Corps), hópi sjálfboðaliða sem berst með Úkraínumönnum gegn rússnesku innrásinni.

RVC eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök í Rússlandi og áðurnefnt hrós kom Gneushev í veruleg vandræði. Hann var handtekinn skömmu síðar og látinn dúsa í stofufangelsi allt þar til að hann hlaut áðurnefndan dóm á dögunum. Þá kemur fram að eiginkona Gneushev hafi sömuleiðis verið rekin úr vinnu sinni vegna „glæps“ eiginmannsins en saman eiga þau fimm börn. Þá hafi lögregluyfirvöld hótað því að börn þeirra yrðu send í fóstur og fjölskylduhundurinn skotinn á meðan rannsókn málsins stóð yfir.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Pútín horfir magnvana á nánustu bandamenn sína missa völdin

Pútín horfir magnvana á nánustu bandamenn sína missa völdin
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda
Pressan
Í gær

Læknir varar við – Þess vegna máttu aldrei halda prumpi í þér

Læknir varar við – Þess vegna máttu aldrei halda prumpi í þér
Pressan
Í gær

„Dóttir mín var myrt meðan börnin sváfu – Nú þarf ég að berjast um forræðið við morðingjann“

„Dóttir mín var myrt meðan börnin sváfu – Nú þarf ég að berjast um forræðið við morðingjann“
Pressan
Í gær

Þessi merki um Parkinsonssjúkdóminn þekkir þú kannski ekki

Þessi merki um Parkinsonssjúkdóminn þekkir þú kannski ekki
Pressan
Í gær

Þessar bílategundir eru líklegastar til að ná 400.000 kílómetrum

Þessar bílategundir eru líklegastar til að ná 400.000 kílómetrum