fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025
Pressan

Varaforsetinn segir tjáningarfrelsið ekki gilda um þá sem fagna andláti Charlie Kirk

Pressan
Fimmtudaginn 18. september 2025 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Varaforseti Bandaríkjanna, JD Vance, stendur fast á því að þeir sem geri grín að andláti áhrifavaldsins Charlie Kirk eigi að sæta afleiðingum. Slík tjáning njóti ekki verndar tjáningarfrelsisákvæðis fyrsta viðauka stjórnarskrárinnar.

„Fyrsti viðaukinn verndar mikið af ljótri orðræðu en ef þú fagnar andláti Charlie Kirk, þá ættir þú ekki að njóta verndar frá því að vera rekinn fyrir að vera ógeðsleg mannvera,“ sagði varaforsetinn í samtali við Fox-fréttastofuna. „Ef þú ert háskólaprófessor sem átt allt þitt undir skattpeningum þá ættir þú ekki að fagna andláti Charlie Kirk og ef þú gerir slíkt þá ættir þú kannski að missa vinnuna eða háskólinn þinn að missa fjármögnum.“

Varaforsetinn bætti við að það sé ekki hægt að koma í veg fyrir að sumum finnist að Kirk hafi átt morðið skilið. Það sé þó þakkarvert að margir, bæði einstaklingar og fyrirtæki, hafi barið í borðið og látið þessa aðila sæta ábyrgð fyrir tjáningu sína.

„Já, við erum með tjáningarfrelsi og leyfum frjálsar rökræður, en ef þú fagnar andláti þessa unga föður ættir þú að fá að gjalda fyrir það.“

Varaforsetinn tók eins fram að ríkisstjórnin sé nú að vinna að því að uppræta öfgafulla vinstrihópa sem séu að hvetja til ofbeldis. Donald Trump hefur nú þegar lýst því yfir að Antifa-hreyfingin sé hryðjuverkasamtök, en ríkisstjórnin heldur því fram að skotmaður Charlie Kirk hafi verið vinstri öfgamaður.

Vance tók fram að það hafi komið í hans hlut að tilkynna forsetanum um andlát Kirk.

„Forsetinn er mjög stóískur en hann komst klárlega í uppnám. Hann eiginlega þagnaði á meðan hann meðtók þetta, svo hristi hann höfuðið og sagði: Hann er – hann var góður maður og við virkilega elskuðum hann.“

Varaforsetinn vill meina að hann sjálfur væri ekki þar sem hann er í dag nema fyrir áhrifavaldinn.

„Ég væri ekki varaforseti Bandaríkjanna ef ekki væri fyrir Charlie Kirk.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Rannsóknarlögreglukona dæmd fyrir að eltihrella og ofsækja – Laug barnaníði upp á fyrrverandi

Rannsóknarlögreglukona dæmd fyrir að eltihrella og ofsækja – Laug barnaníði upp á fyrrverandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Rannsaka lát 19 ára stúlku á Tenerife

Rannsaka lát 19 ára stúlku á Tenerife
Pressan
Fyrir 5 dögum

Telja að myndbandsræða Trump hafi verið búin til af gervigreind

Telja að myndbandsræða Trump hafi verið búin til af gervigreind
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fékk ekki hlutverkið sem hann sóttist eftir – Leikstjórinn vildi ekki „Luke Skywalker“

Fékk ekki hlutverkið sem hann sóttist eftir – Leikstjórinn vildi ekki „Luke Skywalker“
Pressan
Fyrir 6 dögum

Morðið á Charlie Kirk: Telja sig hafa borið kennsl á sakborning

Morðið á Charlie Kirk: Telja sig hafa borið kennsl á sakborning
Pressan
Fyrir 6 dögum

Myrti börnin sín – Líkin fundust fjórum árum síðar í ferðatöskum keyptum á netuppboði

Myrti börnin sín – Líkin fundust fjórum árum síðar í ferðatöskum keyptum á netuppboði