fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025
Pressan

Fyrsta stefnumótið endaði hræðilega

Pressan
Þriðjudaginn 3. júní 2025 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvítugur karlmaður sem fór á stefnumót fyrir skemmstu hefur verið dæmdur í 14 mánaða fangelsi. Maðurinn, Mazyar Azarbonyad, var að hitta ákveðna stúlku í fyrsta sinn í apríl síðastliðnum þegar hann var stöðvaður af lögreglu og á heimleið eftir ágætlega heppnað stefnumót.

Það var þann 9. apríl síðastliðinn sem hinn tvítugi einkaþjálfari var að skutla vinkonu sinni heim í borginni Newcastle. Mazyar stöðvaði bifreiðina, BMW X5, en um það leyti sem lögregluþjónn kom að bifreiðinni gaf Mazyar allt í botn og ók í burtu.

Lögregla hóf eftirför og fór svo að fleiri lögreglubílar voru kallaðir til. Í frétt Guardian er þess getið að Mazyar hafi ekki einu sinni verið kominn með bílpróf því hann hafði aðeins farið í þrjá ökutíma og þar að auki var bifreiðin ekki tryggð.

Mazyar ók á ríflega 150 kílómetra hraða en ekki vildi betur til en svo að fimm lögreglubílar lentu í árekstri á A1-hraðbrautinni í Newcastle. Sjö lögregluþjónar voru fluttir á slysadeild með mismunandi alvarleg meiðsl. Þrír eru komnir aftur til vinnu en fjórir eru enn fjarverandi.

Útlit er fyrir að Mazyar fari ekki á annað stefnumót með vinkonu sinni því hún sagði fyrir dómi að hún hefði ítrekað beðið hann um að stöðva bifreiðina. Óttaðist hún að eftirförin myndi enda með stórslysi sem hún og gerði.

Mazyar hefur nú verið dæmdur í 14 mánaða fangelsi og var dómarinn í málinu ómyrkur í máli þegar hann kvað upp dóm sinn. „Þú hefðir ekki átt að vera nálægt þessum bíl, eða nokkrum öðrum þetta kvöld.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn áttu fótum sínum fjör að launa þegar eldgos hófst í Etnu – Sjáðu myndbandið

Ferðamenn áttu fótum sínum fjör að launa þegar eldgos hófst í Etnu – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta vitum við um brjálæðinginn í Boulder

Þetta vitum við um brjálæðinginn í Boulder
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta eru merki um að þú sért orðinn fullorðinn – Gegn vilja þínum

Þetta eru merki um að þú sért orðinn fullorðinn – Gegn vilja þínum
Pressan
Fyrir 3 dögum

7 manna fjölskylda var myrt í svefni – Var sökinni komið á elsta soninn eða var hann sekur?

7 manna fjölskylda var myrt í svefni – Var sökinni komið á elsta soninn eða var hann sekur?