„Að ég bakki? Það hef ég aldrei heyrt um,“ svaraði Trump.
Spurningunni var varpað fram eftir að myndbönd og „memes“ af Trump og mexíkóskum mat, meðal annars Taco, flæddu yfir Internetið.
Ástæðuna er að finna í skammstöfuninni TACO, sem stendur fyrir „Trump Always Chickens Out“ (Trump bakkar alltaf).
Upphafsmaður að þessu er Robert Amstrong, greinahöfundur hjá Financial Times en hann notaði þetta orð í grein um tollataktík Trump í byrjun maíl.
Trump var ekki sáttur við spurninguna og sagði hana þá ljótustu sem hann hafi nokkru sinni fengið.
En er sannleikskorn í TACO-kenningunni?
Mikael Olai Milhøj, aðalsérfræðingur og hluthafi í fjárfestingarfyrirtækinu Sterna Capital, ræddi við TV2 um málið og sagði að það sé sannleikur í því sem Amstrong skrifaði.
Hann benti á að þegar Trump tilkynnti um 50% toll á Evrópusambandið hafi viðbrögðin á hlutabréfamarkaði ekki verið mjög mikil og þrátt fyrir lækkun þá hafi markaðurinn fljótt jafnað sig. Ástæðan sé að trúverðugleiki hótana Trump sé ekki eins mikill og áður og að áhyggjur af slæmu viðskiptastríði séu horfnar.
„Það getur verið að hótanir séu settar fram öðru hvoru en markaðirnir telja þær ekki trúverðugar því þeir hafa séð að þegar kemur hlutunum, þá gerir stjórn Trump ekki það sem hún segist ætla að gera,“ sagði hann.