fbpx
Sunnudagur 01.júní 2025
Pressan

Svona mörg skref þarf að ganga daglega til að minnka líkurnar á að fá krabbamein

Pressan
Laugardaginn 31. maí 2025 07:30

Það er hollt að fara í göngutúr. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stundum eru það hversdagsvenjur sem hafa mestu áhrifin á heilsufar okkar. Í nýrri stórri rannsókn vísindamanna við Oxfordháskóla kemur fram að daglegur skrefafjöldi okkar getur gegnt lykilhlutverki í baráttunni við krabbamein.

Vísindamennirnir fylgdust með rúmlega 85.000 manns í tæplega sex ár og greindu hreyfingarstig fólksins miðað við hættuna á að fá 13 tegundir krabbameins, þar á meðal brjóstakrabbamein, ristilkrabbamein og krabbamein í blöðruna.

Niðurstaðan var að þeim mun fleiri skref sem fólk gengur daglega, þeim mun minni líkur eru á að það fái krabbamein.

Fólk, sem gengur um 7.000 skref daglega, er í 11% minni hættu á að fá krabbamein miðað við þá sem ganga 5.000 skref.

Ef fólk gengur 9.000 skref er hættan á að fá krabbamein 16% minni.

Ef skrefin eru fleiri en 9.000, fletjast áhrifin út.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Ísak keyptur til Köln
Pressan
Fyrir 3 dögum

Telja að morðinginn líti svona út í dag

Telja að morðinginn líti svona út í dag
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fornleifafundur sagður varpa nýju og óvæntu ljósi á uppruna fótboltans – Nágrannar bítast um hnossið

Fornleifafundur sagður varpa nýju og óvæntu ljósi á uppruna fótboltans – Nágrannar bítast um hnossið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Læknir dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir ævintýraleg tryggingasvik – Greindi sjúklinga ranglega með liðagigt til að fjármagna lúxuslífsstíl

Læknir dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir ævintýraleg tryggingasvik – Greindi sjúklinga ranglega með liðagigt til að fjármagna lúxuslífsstíl
Pressan
Fyrir 4 dögum

FOX-fréttamaður segist ekkert skilja hvert Trump er að fara

FOX-fréttamaður segist ekkert skilja hvert Trump er að fara