fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Pressan

DNA úr Neanderdalsmönnum er enn í erfðamengi okkar

Pressan
Laugardaginn 1. júní 2024 14:30

Homo sapiens og Neanderdalsmaður. Mynd:Wikimedia

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hópurinn hafði ferðast mörg þúsund kílómetra yfir Afríku og Miðausturlönd áður en hann kom í dimman skóg í nýju heimsálfunni. Þetta voru einir fyrstu mennirnir, Homo sapiens, sem komu til Evrópu.

Þeir hittu líklega fjarskylda ættingja sína, Neanderdalsmennina, fljótlega eftir komuna til Evrópu. Neanderdalsmennirnir voru með stórt höfuð, miklar augabrýr og sveran búk. Þeir höfðu verið lengi í Evrópu og höfðu lagað sig að svölu loftslaginu þar.

Næsta árþúsundið lifðu þessar tvær tegundir í Evrópu, þær hittust, áttu samskipti og mökuðust.

Nú, tugþúsundum ára síðar, er enn hægt að finna ummerki um þessa blöndun tegundanna í nútímamönnum, erfðaefni frá Neanderdalsmönnum.  Þessi DNA hafa áhrif á okkur, bæði lítil og mikil, allt frá útliti okkar til hættunnar á að fá sjúkdóma.

„Á sumum sviðum er erfðamengi okkar meira frá Neanderdalsmönnum komið en frá mönnum,“ sagði Joshua Akey, prófessor í erfðafræði við Princeton háskóla, við Live Science.

Neanderdalsmenn voru nánustu ættingjar okkar nútímamanna og við berum arfleið þeirra í okkur.

Sriram Sankararaman, prófessor í tölvunarfræði og erfðafræði við UCLA, sagði Live Science að í upphafi hafi nútímamenn erft allt erfðamengi Neanderdalsmanna. En með hverri kynslóð hafi þetta DNA verið brotið niður og stokkað upp í ferli sem kallast erfðafræðileg endurröðun.

DNA Neanderdalsmanna var almennt séð „skaðlegt“ fyrir nútímamenn og því var því eytt hratt úr DNA nútímamanna í þróunarferlinu. Þetta endaði með því að í stóran hluta DNA nútímamanna vantar DNA úr Neanderdalsmönnum að sögn Sankararaman.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Lét mömmu sína hringja í þingmenn svo hann geti orðið varnarmálaráðherra – „Hann hljóp heim og klagaði í mömmu“

Lét mömmu sína hringja í þingmenn svo hann geti orðið varnarmálaráðherra – „Hann hljóp heim og klagaði í mömmu“
Pressan
Í gær

Katie Holmes svarar orðrómunum – „Algjör vitleysa“

Katie Holmes svarar orðrómunum – „Algjör vitleysa“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vinna í kappi við tímann við að bjarga þúsundum úr sýrlensku neðanjarðarfangelsi

Vinna í kappi við tímann við að bjarga þúsundum úr sýrlensku neðanjarðarfangelsi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lokkuð í frí af „kærastanum“ – Var upphafið að hryllingi

Lokkuð í frí af „kærastanum“ – Var upphafið að hryllingi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þessi matvæli á aldrei að setja í ísskáp

Þessi matvæli á aldrei að setja í ísskáp
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ertu í vandræðum með silfurskottur? Svona er hægt að losna við þær

Ertu í vandræðum með silfurskottur? Svona er hægt að losna við þær
Pressan
Fyrir 4 dögum

Eru gulir blettir á koddanum þínum? Þeir eru skýr aðvörun

Eru gulir blettir á koddanum þínum? Þeir eru skýr aðvörun
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lítið barn í lífshættu eftir dularfullt slys

Lítið barn í lífshættu eftir dularfullt slys