Undir gólfinu fundust fimm beinagrindur og það sem gerir málið enn óhugnanlegra er að á þær vantaði hendur og fætur. Der Spiegel skýrir frá þessu.
Lögreglunni var strax tilkynnt um þetta en rannsókn lögreglunnar leiddi ekki í ljós að glæpur hefði verið framinn nýlega.
Beinagrindurnar eru af þremur fullorðnum, unglingi og ungabarni.
Der Spiegel segist hafa heimildir fyrir að um fjölskyldu geti verið að ræða.
Wolfsschanze var eins og áður sagði ein aðalbækistöð nasista. Á þeim tíma var þetta lítill bær þar sem nasistar bjuggu og var vel gert við þá. Kvikmyndahús var í bænum, kaffihús og loftvarnirnar við hann voru í góðu lagi.
Í dag er svæðið í mikilli niðurníðslu.
Göring gekk næstur Adolf Hitler að völdum. Hann var einn grimmasti handlangari Hitlers en um leið var hann einn vinsælasti leiðtogi nasista. Ástæðan er að hann, ólíkt Hitler, var talinn mjög alþýðlegur og glaðbeittur og af þeim sökum féll almenningi vel við hann.
Hann setti Gestapo á laggirnar sem og fyrstu útrýmingarbúðirnar. Flest þau lög, sem voru sett og beindust gegn gyðingum, eru með hans undirskrift.
Hermenn bandamanna handsömuðu Göring í lok stríðsins og var hann dæmdur til dauða, það átti að hengja hann. En skömmu áður en aftakan átti að fara fram svipti hann sig lífi.