fbpx
Fimmtudagur 09.maí 2024
Pressan

Lömuð fyrir neðan háls eftir að hafa borðað súpu úr niðursuðudós

Pressan
Laugardaginn 27. apríl 2024 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Claudia de Albuquerque Celada, 23 ára kona, er nú í öndunarvél og lömuð fyrir neðan háls eftir að hafa fengið alvarlega sýkingu eftir að hafa borðað súpu úr niðursuðudós.

Claudia, sem er fædd og uppalin í Brasilíu, var við vinnu í Aspen í Colorado í Bandaríkjunum í febrúar síðastliðnum þegar hún veiktist af bótúlisma. Um er að ræða sjaldgæfan en alvarlegan sjúkdóm sem stafar af bakteríu sem finnst meðal annars í menguðum mat.

Bakterían myndar eiturefni sem getur haft víðtækar afleiðingar í för með sér fyrir taugakerfið.

Grunur leikur á að bakterían hafi komist í Claudiu eftir að hún borðaði súpu úr niðursuðudós sem hún keypti í stórverslun í Aspen í febrúarmánuði. Matvælaeftirlitið tók sýni úr sömu vöru í sömu verslun og voru þau öll neikvæð.

Er talið líklegt að eitthvað hafi misfarist hjá Claudiu þegar hún geymdi vöruna eða hitaði hana, en á vef Doktor.is er bent á að eitrið sé gert óvirkt með því að hita matvæli í 2 mínútur við 90 gráður.

Á aðeins sólarhring eftir að Claudia borðaði súpuna var hún orðin nánast lömuð fyrir neðan háls. Það tók lækna talsverðan tíma að komast að því að bótúlismi væri sökudólgurinn en Claudia dvelur enn á sjúkrahúsi og er á hægum batavegi. Hún hefur nú verið á sjúkrahúsi í rúma 50 daga og  gæti þurft að dvelja þar í nokkra mánuði til viðbótar.

Bótúlismi er sjaldgæfur og koma aðeins um hundrað tilfelli upp í Bandaríkjunum á ári hverju að jafnaði. Um fimm af hverjum hundrað sem fá sjúkdóminn deyja en þeim sem lifa af bíður oftar en ekki löng og ströng endurhæfing.

Eftir að greint var frá máli Claudiu ákváðu heilbrigðisyfirvöld í Colorado að senda út tilkynningu þar sem fólk var hvatt til að geyma matvæli á heilnæman hátt; setja þau í kæli þegar það á við og fara eftir eldunarleiðbeiningum á umbúðum.

Á vef Doktor.is er mælt með þessum ráðum þegar kemur að meðhöndlun matvæla:

  • Halda kælivörum við 0-4°C
  • Skola grænmeti og ávexti fyrir notkun
  • Ekki blanda saman hráum og elduðum matvælum – halda þeim alveg aðskildum
  • Hita matvæli nægjanlega mikið við eldun og tryggja hraða kælingu ef þeirra er ekki neytt strax
  • Fylgja geymsluþolsleiðbeiningum og öðrum leiðbeiningum sem fylgja matvælum
  • Forðast bólgnar eða gallaðar niðursuðudósir eða umbúðir. Eða óhitaðan grunsamlegan mat.
  • Þvo hendur áður en átt er við matvæli
  • Koma í veg fyrir mengun frá jarðvegi í matvælin – þá sérstaklega að skola grænmetið vel
  • Hitastig við 120°C í 15 mínútur eyðir gróum.
  • Eitrið er gert óvirkt með því að hita matvæli í 2 mínútur við 90°C.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Vann tvo 140 milljóna lottóvinninga á 10 vikum

Vann tvo 140 milljóna lottóvinninga á 10 vikum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Myglusveppur á danska ríkisspítalanum varð 11 ára dreng að bana

Myglusveppur á danska ríkisspítalanum varð 11 ára dreng að bana
Pressan
Fyrir 5 dögum

Kyn læknisins þíns getur haft sérstaka þýðingu

Kyn læknisins þíns getur haft sérstaka þýðingu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Óttast að ISIS láti til skarar skríða í Svíþjóð vegna Eurovision

Óttast að ISIS láti til skarar skríða í Svíþjóð vegna Eurovision