Þessu fær japanski bleiuframleiðandinn Oji Holdings nú að kenna á. BBC segir að fyrirtækið hafi nú ákveðið að hætta framleiðslu á barnableium en á móti ætli það að auka framleiðslu sína á fullorðinsbleium.
Þetta endurspeglar þróunina í Japan þar sem fæðingartíðnin hefur lækkað hratt um langt skeið. Á síðasta ári fæddist 758.631 barn í Japan og hafa fæðingar aldrei verið færri frá því að skráningar hófust. Þetta var 5,1% fækkun frá árinu áður. Þá fækkar þeim sífellt sem ganga í hjónaband. Það virðist ekki gagnast mikið að yfirvöld hafa gripið til margvíslegra aðgerða til að fá landsmenn til að stofna fjölskyldu.
Talsmaður Oji Holdings sagði BBC að svo mikið hafi dregið úr eftirspurn eftir barnableium að framleiðslunni verði hætt í september næstkomandi.
CNN segir að í september hafi japönsk yfirvöld skýrt frá því að rúmlega 10% landsmanna séu áttræðir eða eldri. Ef horft er á aldurshópinn 65 ár og eldri, þá er hann 29,1% af heildarmannfjöldanum.
Fæðingartíðni japanskra kvenna er 1,374 börn sem er þó ekki lægsta fæðingartíðni heims en hún er í Suður-Kóreu. Þar fæðir hver kona að meðaltali 0,84 barn.