Steven reyndi að fjarlægja umrætt hár en ekki vildi betur til en svo að hann fékk bakteríusýkingu og heiftarlega blóðeitrun sem hafði mikil áhrif á líffærin í líkama hans. Blóðsýkingin dreifðist um líkamann og fékk Steven að lokum sýklasótt sem læknum gekk erfiðlega að vinna bug á.
Þetta var síðla árs 2022 og varð sýklasóttin til þess að honum var komið fyrir í öndunarvél þar sem honum var haldið sofandi.
Þetta var ekki eina áhyggjuefnið því á meðan hann lá á sjúkrahúsinu fékk hann inflúensu og lungnabólgu. Þurfti hann einnig að gangast undir opna hjartaaðgerð á meðan hann lá á sjúkrahúsinu þar sem sýkingin hafði borist þangað.
Michelle, systir Stevens, hefur leyft fylgjendum sínum, vinum og vandamönnum, að fylgjast náið með bataferli bróður síns sem hefur gengið kraftaverki líkast.
Í ljós kom að Steven hafði fengið sjaldgæfa en hættulega bakteríu í sig sem varð þess valdandi að heilsu hans hrakaði hratt.
Um tíma töldu læknar að lífslíkur Stevens væru aðeins um 4% og var ástand hans það alvarlegt að læknar óttuðust að hann yrði heiladauður.
Hægt og rólega náði Steven þó bata og verður hann líkari sjálfum sér með hverjum deginum sem líður. Hann er byrjaður í endurhæfingu og getur núna gengið sjálfur með hjálp göngugrindar.
„Hann missti aldrei trúna á meðan aðrir gerðu það,“ sagði Michelle í myndbandi á TikTok í vikunni.
@michellebell111 Replying to @Travel girl #brotherskeeper #wakingupfromacoma #coma #spinalestrong #drsmakemistakes ♬ Never Give Up – Motiversity & Coach Pain & Dr. Jessica Houston