Eins og gefur að skilja vildu margir gjarnan finna kassann enda um ágætis búbót að ræða í honum. Allir máttu taka þátt og reglurnar voru einfaldar. Sá sem fyrsti sem fyndi kassann og gæti opnað hann mátti eiga alla peningana.
Nú er leiknum lokið að sögn Alf Gunnar Andersen, stofnanda Horde. Í myndbandi, sem var birt á TikTok, segir hann að tveir sigurvegarar hafi verið kjörnir. Dagbladet skýrir frá þessu og segir að það hafi verið um klukkan tvö aðfaranótt mánudags sem kassinn fannst. Hann var í sveitarfélaginu Tokke sem er vestanverðri Þelamörk.
Það var ekki bara nóg að finna kassann, það þurfti að opna hann til að fá peningana. Kassinn var læstur með kóða. Þátttakendur fengu vísbendingar um kóðann á meðan á leiknum stóð. Þær voru birtar á samfélagsmiðlum, fréttabréfum og í appi Horde sem varð það app, sem oftast hefur verið hlaðið niður í Noregi, þegar leikurinn hófst.
Appið hjálpar notendum að ná tökum á til dæmis afborgunum á lánum. Upphæðin í kassanum er tákn fyrir þann fjölda Norðmanna sem eru með neyslulán.
Það voru Sigurd Sundklakk og Hans Inge Josdal sem fundu kassann og gátu opnað hann.
Horde var gagnrýnt af mörgum fyrir að stefna öryggi fólks í hættu með leiknum því svona há fjárhæð gæti kallað það versta fram í fólki. Horde sá sig því tilneytt til að senda frá sér tilkynningu í síðustu viku um að engir peningar væru í kassanum. Sigurvegarinn eða sigurvegararnir myndu fá upphæðina greidda inn á bankareikning sinn og það hefur nú verið gert.