En þetta reyndist ekki ávísun á gott kynlíf því hann lést skömmu eftir að hann drakk kaffið.
Þetta gerðist á hóteli í Phattahlaung í Indónesíu síðasta laugardag. Maðurinn hafði keypt sér þjónustu vændiskonu og leigt hótelherbergi. En það kom ekki til þess að vændiskonan veitti umsamda þjónustu því maðurinn lést áður en til þess kom. Hún flúði þá í skyndingu.
Daily Star segir að samkvæmt því sem talsmaður lögreglunnar hafi sagt þá hafi verið tilkynnt um andlát mannsins um klukkan 14. Er talið að þá hafi þrjár klukkustundir verið liðnar síðan hann lést. Ekkert bendi til að honum hafi verið ráðinn bani né að hann hafi náð að stunda kynlíf eftir að hafa drukkið kaffið með stinningarlyfinu út í.
Það sem varð honum líklegast að bana er að hann blandaði heilum pakka af Viagra út í kaffið og virðist það hafa riðið líkama hans að fullu.
Þessu til viðbótar fann lögreglan fjóra pakka af Viagra í mótorhjóli mannsins.
Maðurinn hafði komið á hótelið allt að fjórum sinnum í mánuði síðustu mánuði og var alltaf ný kona með í för hverju sinni.
Þennan örlagaríka daga hafði hann pantað herbergi í tvær klukkustundir og með honum var kona á sextugsaldri. Eins og áður sagði lét hún sig hverfa af vettvangi en lögreglan vonast til að geta haft uppi á henni til að heyra frásögn hennar af hvað gerðist.