Bandarískir stjórnmálamenn segja oft að mexíkósku eiturlyfjahringirnir séu ein helsta ástæða afbrota og eiturlyfjavandamála í Bandaríkjunum. En þeir nefna sjaldan að stríð eiturlyfjahringanna í Mexíkó er að miklu leyti háð með vopnum sem koma frá Bandaríkjunum.
„Mexíkóskir eiturlyfjahringir hafa aðgang að miklu magni hátæknivopna frá Bandaríkjunum. Það gerir baráttuna gegn þeim enn erfiðari,“ sagði starfsmaður mexíkósku leyniþjónustunnar við Vice News nýlega.
Washington Post segir að á síðasta áratug hafi tveimur og hálfri milljón handvopna verið smygla frá Bandaríkjunum til Mexíkó.
Á síðasta ári reyndu mexíkósk stjórnvöld að höfða mál gegn bandarískum vopnaframleiðendum fyrir að eiga hlut að máli í þeim fjölda morða sem eru framin með skotvopnum í Mexíkó. Á milli 70 og 90% þeirra vopna sem finnast á morðvettvöngum í Mexíkó hefur verið smyglað frá Bandaríkjunum að því er segir í málshöfðuninni sem er nú til meðferðar hjá áfrýjunardómstóli.
Mjög ströng vopnalöggjöf er í Mexíkó og segja bandarískir fjölmiðlar að þar í landi sé aðeins ein lögleg vopnaverslun og hún er að auki staðsett í herstöð, svo aðgengi að henni er ekki auðvelt.
Þetta gerir að verkum að það er auðveldara fyrir eiturlyfjahringana að verða sér úti um vopn frá Bandaríkjunum.