En 2016 gerðist það óvænta, engin pöntun barst frá honum í nokkra daga, eða 11. Starfsfólkið fór þá að hafa áhyggjur af Alexander.
Sarah Fuller, útibússtjóri staðarins, sagði að nokkrir sendlanna hefðu nefnt að engin pöntun hefði borist frá Alexander í nokkra daga. Hún gáði því í tölvukerfið og sá að 11 dagar voru liðnir frá síðustu pöntun hans. Það var auðvitað ólíkt honum og því var sendill sendur heim til hans til að kanna hvort allt væri í lagi.
Alexander svaraði ekki þegar hann dinglaði bjöllunni en húsið var uppljómað og kveikt var á sjónvarpinu.
Sendlinum fannst augljóst að hlutirnir væru ekki eins og þeir áttu að vera og því hringdi hann í lögregluna. Þegar lögreglumenn komu á vettvang heyrðu þeir mann kalla á hjálp innan úr húsinu. Þeir brutu því útidyrnar upp og fóru inn í húsið.
Alexander var þar inni og þarfnaðist skjótrar læknisaðstoðar. Hann var fluttur á sjúkrahúsi í skyndi þar sem læknar náðu að koma ástandi hans í jafnvægi.
Starfsfólk pitsastaðarins heimsótti hann á sjúkrahúsið og færði honum blóm og heilla kort en lét vera að koma með pítsu.
Ekki er vitað hvað hrjáði Alexander en það skiptir svo sem ekki miklu máli í þessari sögu því það sem skiptir máli er að fólk hafði áhyggjur af honum þrátt fyrir að það þekkti hann í raun ekki.