Talið er að þetta séu hlutar af líki Abby Choi, 28 ára áhrifavalds og fyrirsætu, en lögreglan var einmitt að leita að henni.
Búið er að handtaka foreldra fyrrum eiginmanns hennar og bróðir hans vegna málsins. Talið er að þau hafi myrt Choi vegna deilna um fjármál.
Tilkynnt var um hvarf Choi á miðvikudaginn. Sky News skýrir frá þessu auk fjölda annarra erlendra miðla.
Talsmaður lögreglunnar sagði um helgina að enn væri leitað að höfði Choi. Hann sagði að lögreglan telji að hugsanlega megi rekja morðið til deilna um fjármál og hafi háar fjárhæðir verið undir.
Sky News segir að í húsinu hafi fundist verkfæri sem er hægt að nota til að hluta lík í sundur. Þar á meðal kjötkvörn, vélsög, síðir regnfrakkar, hanskar og grímur. Einnig fundust skilríki í eigu Choi og persónulegir munir í húsinu.
Lögreglan telur að faðir fyrrum eiginmanns Choi hafi leigt húsið fyrir nokkrum vikum, gagngert til að nota það til að myrða hana og sundurhluta líkið.
The Guardian segir að Choi hafi síðast sést á lífi í fylgd með bróður fyrrum eiginmannsins.
Ekki er vitað hvar eiginmaðurinn fyrrverandi heldur sig.