Hann fer meira út. Skyndilega er svo mikið að gera hjá honum öllum stundum. Hann fer oftar út að hitta vini sína, eða vinkonur, en áður. Það er líka oftar sem hann þarf að hitta einhverja ættingja. Þetta þýðir ekki nauðsynlega að hann sé að halda framhjá en gæti verið góð vísbending um það.
Hann er snyrtilegri en áður. Þegar fólk hefur verið í sambandi í ákveðinn tíma er það farið að þekkja hvort annað inn og út. Það veit því vel hvernig makinn þrífur sig, klæðir sig og svo framvegis. En það getur verið vísbending um framhjáhald ef hann fer skyndilega að huga miklu meira að eigin útliti. Af hverju fer hann svona oft í bað? Er hann að reyna að heilla þig? Það eru kannski ekki miklar líkur á því.
Skapsveiflur. Makinn hefur enga góða ástæðu til að fara eitthvað án þín og því skáldar hann þessa ástæðu. Hann verður því auðveldlega pirraður eða reiður því hann er alltaf að reyna að finna nýja afsakanir fyrir fjarveru sinni. Þetta er lýjandi og veldur skapsveiflum. Þegar þú spyrð hann út í stöðuga fjarveru hans af heimilinu verður hann væntanlega æstur og forðast að svara.
Hann þarf skyndilega mikið einkalíf. Þið hafið þekkst lengi og alltaf talað saman um það sem er að gerast í lífi ykkar. En núna er allt breytt. Hann vill ekki segja þér hvað er að gerast hjá honum og segir bara að þú sért forvitin(n). Hann reiðist ef þú spyrð hverjum hann er að senda skilaboð.
Hann heldur símanum sínum frá þér. Ef makinn fer skyndilega að halda símanum sínum frá þér þá getur það verið merki um að hann hafi eitthvað að fela. Skiptir þá engu þótt þú hafi haft aðgang að símanum áður eða ekki.
Hann veltir sökinni yfir á þig. Ef þú spyrð hann út í hugsanlegt framhjáhald mun hann sjálfkrafa varpa sökinni á þig og saka þig um að ljúga. Þetta getur verið eitthvað alls ótengt, til dæmis að hafa ekki búið um rúmið eða að hafa ekki vaskað upp. Hann reynir allt til að forðast að tala um það sem hann hefur sjálfur gert.
Kynlífslöngunin er minni. Þú veitir því athygli að kynlífslöngun hans hefur minnkað mikið. Þú ert til í tuskið en makinn vísar þér á bug. Það getur verið merki um að einhver annar sjái um að fullnægja honum kynferðislega.