Þegar fyrst er litið á myndina er alveg hægt að sjá dyr á henni. Það væri svo sem ekki neitt sérstaklega merkilegt nema hvað þær eru þá á Mars sem er líflaus pláneta eftir því sem við vitum best.
NASA found something that looks like a Door In Mars #space @elonmusk pic.twitter.com/57ZTd4MbBG
— Science Explorist (@SciExplorist) May 15, 2022
Á Reddit skrifaði einn notandi: „Ég er að reyna að átta mig á þessari mynd sem Curiosity tók á Mars fyrir nokkrum dögum. Hvað gæti hafa valdið því að þessar dyr líta svona út? Klettarnir fyrir framan þær eru ekki nægilega samstæðir til að passa.“
Curiosity hefur verið á ferð um Mars síðan 2011. Verkefni bílsins er að rannsaka jarðvegssýni og steina. Hann rannsakar einnig hvort líf hafi verið á Mars áður og hvort líf geti þrifist þar nú.
Jótlandspósturinn leitaði svara hjá Anja Andersen, stjarneðlisfræðingi við Kaupmannahafnarháskóla, um dyrnar. Hún sagði að það sem sést á myndinni séu ekki dyr. Þetta geti verið afleiðing setmyndunar en það sé auðvitað svo náttúruleg skýring að hún sé ekki eins spennandi og fólk vilji. Þetta verði þó rannsakað betur.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem mynd frá Mars hefur vakið upp miklar vangaveltur. Margir muna eflaust eftir „andlitinu á Mars“ sem reyndist einfaldlega vera steinn sem skuggar féllu á með þeim hætti að það virtist sem um andlit væri að ræða.
The Face on Mars
–
📷: NASA, Viking 1 Orbiter pic.twitter.com/HIwJI3XoFj— 𝙲𝚘𝚜𝚖𝚘𝚜 (@observedcosmos) May 11, 2022