Christopher Pine, 70 ára gamall bóndi frá Englandi, var að plægja akur á dögunum þegar maður með hund kom upp að honum. Maðurinn með hundinn kvaðst vera ósáttur með vinnu bóndans og sagði að hann væri að plægja yfir göngustíginn á akrinum. Í kjölfar þess tók maðurinn upp mold og kastaði í átt að bóndanum.
„Hann ögraði honum ekki neitt, þessi maður kastaði mold í hann þegar hann keyrði framhjá,“ segir Jane Pine, eiginkona bóndans, í samtali við Somerset Live.
„Hann [Christopher] nam þá staðar og spurði hvað vandamál þessa manns væri, hvers vegna hann gerði þetta. Þá sagði maðurinn honum að plægja ekki yfir göngustíginn en hann var auðvitað ekki að gera það – hann gerir alla vinnuna sína 100% eins og hann á að gera hana. Við erum að leigja akurinn svo við erum í rauninni mun varkárarri fyrir vikið.“
Ljóst er að manninum fannst moldarkastið ekki nægja því eftir þessi stuttu orðaskipti tók hann upp stein og kastaði í bóndann. Steinninn endaði í höfðinu á Christopher með þeim afleiðingum að hann fékk gat við vinstra eyrað sitt. Það fossblæddi úr höfði hans og fór hann því upp á bráðamóttöku. Þar fékk hann nokkur spor samkvæmt eiginkonu hans.
„Hann kastaði steininum í höfuð eiginmanns míns og hljóp síðan í burtu,“ segir Jane og vekur athygli á því hve litlu munaði að verr færi. „Ef eiginmaður minn hefði verið að horfa um 5 sentimetra í hina áttina þá hefði hann misst augað sitt.“