fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Pressan

Ómíkron er stjórnlaust í Danmörku

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 8. desember 2021 07:00

Kórónuveira. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ómíkron afbrigði kórónuveirunnar er komið á mikið flug í Danmörku og segir Henrik Ullum, forstjóri dönsku smitsjúkdómastofnunarinnar (Statens Serum Institut) að afbrigðið sé nú stjórnlaust.

Þetta kom fram á fréttamannafundi heilbrigðisyfirvalda í gær. Sagði Ullum að Ómíkron hafi nú fundist í öllum landshlutum og hlutfall þess af heildarfjölda smita fari vaxandi. Hann sagði að áður hafi afbrigðið aðeins tengst fólki sem kom til landsins en nú sé það farið að dreifast innanlands. Nú smitist rúmlega 90%, þeirra sem smitast af afbrigðinu, innanlands.

Ullum, Søren Brostrøm landlæknir og Annette Lykke Petri, forstjóri eftirlitsstofnunar með heilbrigðiskerfinu, slógu því föstu á fundinum í gær að Ómíkron valdi nú samfélagslegu smiti.

Metfjöldi smita greindist í Danmörku í gær eða 6.324. Mette Frederiksen, forsætisráðherra, hefur boðað til fréttamannafundar klukkan 20.30 í dag þar sem reikna má með að hertar sóttvarnaaðgerðir verði kynntar en ríkisstjórnin fundar með fulltrúum stjórnmálaflokkanna í dag um hertar aðgerðir. Magnus Heunicke, heilbrigðisráðherra, mun ekki vera á fundinum en hann greindist með COVID-19 í gær og er í einangrun í Brussel.

Søren Brostrøm sagði í gær að hann leggi til að stjórnvöld líti til þess að loka næturlífinu, það sé kjörvettvangur ofursmitviðburða enda komi margt fólk þar saman í lokuðum rýmum og erfitt sé að halda góðri fjarlægð á milli fólks.

Ekki er vitað hvað ríkisstjórnin mun leggja til en talsmenn atvinnulífsins hafa áhyggjur af að gripið verði til umfangsmikilla lokanna á samfélagsstarfsemi eins og gert var í desember á síðasta ári þegar flestum verslunum var gert að loka og fólk hvatt til að vinna að heiman frá sér ef þess væri nokkur kostur.

Ríkisstjórnin mun væntanlega kynna aðgerðir til að hraða bólusetningu, örvunarskammtinum, en nú þegar hefur verið bætt verulega í og er hægt að bólusetja hálfa milljón manna í viku hverri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þetta er nískasta fólkið samkvæmt stjörnumerkjunum

Þetta er nískasta fólkið samkvæmt stjörnumerkjunum
Pressan
Í gær

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum
Pressan
Í gær

Óvæntar fréttir af sæðisgæðum karla

Óvæntar fréttir af sæðisgæðum karla
Pressan
Í gær

Hrollvekjandi frásagnir rússneskra hermanna – „Núllstilling“

Hrollvekjandi frásagnir rússneskra hermanna – „Núllstilling“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Átti í ástarsambandi við 44 árum eldri mann – Hvað ætlaði hún sér?

Átti í ástarsambandi við 44 árum eldri mann – Hvað ætlaði hún sér?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“ 

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“