fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Kynning

Barnasýningar í Þjóðleikhúsinu vegna fyrirhugaðs verkfalls

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 17. febrúar 2020 11:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þjóðleikhúsið hefur ákveðið að bregðast hratt við vegna fyrirhugaðs verkfalls leikskólakennara í Reykjavík og bjóða upp á leiksýningar fyrir yngstu börnin á virkum dögum.  

„Auðvitað vonum við að þessi deila leysist sem allra fyrst,“ segir Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri, „en við ákváðum að vera tilbúin ef til verkfalls kemur, og bjóða upp á sýningar fyrir börn með lækkuðu miðaverði. Það getur verið dýrmætt að fá tækifæri til að gera eitthvað óvenjulegt og skemmtilegt með börnunum á svona tímum, og því ákváðum við að taka til sýninga eina af barnasýningunum okkar, Ómar Orðabelg. Sýnt verður í Kúlunni kl. 13:00 alla næstu viku, frá og með þriðjudegi, ef af verkfalli verður. Vegna aðstæðna lækkum við miðaverð og kostar miðinn aðeins 1.000 kr.“  

Ómar Orðabelgur er nýtt, íslenskt barnaleikrit eftir Gunnar Smára Jóhannesson í leikstjórn Björns Inga Hilmarssonar, sem Þjóðleikhúsið sýndi síðastliðið haust. Í sýningunni sláumst við í för með Ómari Orðabelg í leit að uppruna orðanna. Hvaðan kemur orðið fíll? Afhverju segjum við fægiskófla? Er appelsína epli frá Kína? Ómar Orðabelgur ferðast um heim orðanna og kynnist allskonar skrýtnum orðum, en eitt orð mun hann kannski aldrei skilja til fulls. Dauðinn. Hvað er að deyja? Dauðinn er orð sem allir þekkja en veit einhver hvað það þýðir í raun? Ómar Orðabelgur er í senn hjartnæm, fyndin og fjörug sýning, sem tekur um 40 mínútur í flutningi.  

Sem fyrr segir munu sýningar hefjast þriðjudaginn 18. febrúar kl. 13, ef að verkfallsaðgerðir standa enn. Ef deilan leysist verða sýningar felldar niður, og gestir fá ónotaða miða endurgreidda eða geta nýtt þá sem inneign á aðrar sýningar á tíma sem hentar. Áhugasamir geta nálgast nánari upplýsingar á vef Þjóðleikhússins, leikhusid.is. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7