fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Hin glitrandi fegurð finnst líka í kombucha

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 26. mars 2021 09:00

Á sínum tíma var Gyða Dís ein af þeim sem „smyglaði“ sveppinum inn í landið, þar sem hann var í raun ólöglegur. Mynd/Stefán

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gyða Dís hefur um árabil boðið Íslendingum upp á heilsumiðaða jógatíma, jógakennaranám og heilsumiðaðar jógaferðir. Þá hefur hún kafað djúpt í Ayurvedafræðin og segir þann lærdóm tengjast ást sinni á kombucha-drykknum órjúfandi böndum.

Heilsuvegferðin hófst hjá Gyðu Dís þegar hún tók afdrifaríka ákvörðun árið 2003 um að taka lífsstílinn rækilega í gegn. „Ég eignaðist son minn sem er langveikur og er í dag orðinn ungur maður. Til þess að geta sinnt mínu hlutverki sem móðir langveiks barns og þeim krefjandi en skemmtilegu verkefnum sem því fylgdu, þá þurfti ég að setja sjálfa mig í fyrsta sæti,“ segir Gyða.

Frumkvöðull á Íslandi

Gyða Dís starfrækir jógastúdíóið Shree Yoga, en shree/shre/sri kemur úr sanskrít og stendur fyrir hina glitrandi fegurð sem finna má í öllu sem er. Þar býður hún upp á jóganámskeið, kennaranámskeið og heilsumiðaðar jóga- og matarferðir á vegum stúdíósins. Einnig hefur hún kynnt spennandi nýjungar í jógafræðum fyrir Íslendingum. Þá var hún sú fyrsta hér á landi til þess að kynna handstöður inn í jógatímana.

„Ég var með handstöðuáskorun í 365 daga þar sem ég hvatti fólk til þess að tileinka sér handstöðutæknina. Í öllu mínu starfi hef ég lagt áherslu á að vera með heildræna nálgun. Því jóga er ekki bara stöðurnar, heldur er gríðarlega mikilvægt að fara líka í öndunina. Svo blanda ég Ayurveda-fræðunum alltaf saman við, enda er svo mikinn lærdóm að draga af þeim.“ Gyða Dís heldur líka úti fræðandi bloggi, www.shreeyoga. is, þar sem hún fræðir lesendur um Ayurveda, jóga, heilsu og birtir mataruppskriftir.

Leyniráð Ayurveda

„Í minni heilsuvegferð sem hófst 2003 var allra fyrsta verkefnið hjá mér að taka út gosdrykki og ruslfæði, en samkvæmt Ayurveda-fræðunum, sem snúast um líf og vísindi í grunninn, er mikil áhersla lögð á fæðið og er það ávallt í fyrsta sæti þegar kemur að heilsunni. Þá er mælt með plöntumiðuðu fæði og mikið rætt um lækningamátt jurta. Við erum því í raun að nota jurtir og mataræði til þess að heila líkamann. Næst á eftir er svefninn, og er ég mjög glöð yfir því að það hefur orðið mikil vitundarvakning í samfélaginu um mikilvægi svefns. Hreyfingin kemur svo ekki fyrr en í þriðja sæti. Það er líka svo skemmtilegt að í Ayurveda-fræðunum er að finna svo mörg leyniráð og þaðan höfum við lært hvað túrmerik er hollt og bólgueyðandi, hvað kanillinn er frábær og hversu kardimommur eru bráðhollar fyrir okkur.

Hægt og bítandi tók ég svo út mjólkurvörur. Því næst tók ég út kjötið og síðast hætti ég í kjúklingi og fiski. Svo varð ég grænmetisæta og árið 2009 fór ég á hráfæði. Því hélt ég fram til ársins 2016 og er nú hægt og blíðlega að bæta inn heitum mat í mataræðið. Nú er ég á plöntumiðuðu fæði og passa mig á því að borða engar unnar matvörur. Breytingin varð mér mjög til batnaðar. Fólkið í kringum mig var fljótt að taka eftir þessari breytingu og er ég mjög þakklát í dag að búa að því að hafa tekið lífsstílinn í gegn.“

Ólöglegur sveppur með  jákvæða eiginleika

Gyða Dís byrjaði snemma að drekka kombucha á svipuðum tíma og hún var að fara yfir í hráfæðið. „Á sínum tíma var hvergi hægt að komast í kombuchateið og var ég ein af þeim sem „smyglaði“ sveppinum inn í landið, þar sem hann var í raun ólöglegur. Þessi tilraunastarfsemi er nokkuð plássfrek og var ég komin í ýmiss konar tilraunastarfsemi með kombucha heima hjá mér. Sumt tókst vel, annað ekki. En sveppurinn er snöggur að stækka og þá fjölgar ílátunum fljótt sem þarf til að geyma og ala sveppinn. Þegar ég heyrði af því að verið væri að hefja framleiðslu á íslensku kombucha úr okkar frábæra íslenska vatni, þá varð ég virkilega spennt.“

Gyða er hrifin af glóaldinbragðinu enda er það frískandi og milt á bragðið. Mynd/Dani Guindo

Kærkomið framtak

„Í öllu mínu starfi þreytist ég seint á því að dásama kombucha tedrykkinn. Í heilsuferðunum gef ég jógunum mínum alltaf skot af kombucha á fastandi maga, en þetta er það besta sem þú gerir til þess að keyra meltingarkerfið í gang. Kombucha er stutfullt af góðgerlum sem bústa kerfið á morgnana. Sjálf drekk ég um eina flösku á dag sem er feykinóg fyrir mig. Ég er með jógatíma klukkan sex á morgnana og fæ mér alltaf sopa af kombucha frá Kombucha Iceland áður en ég fer að kenna. Svo fæ ég mér sopa eftir á líka. Þá drekk ég aldrei með mat en ég fæ mér oftast kombucha frá Kombucha Iceland fyrir máltíðir. Kombucha hefur gríðarlega jákvæð áhrif á mig, gefur mér orku og róar meltinguna.

Uppáhaldsbragðið mitt er klárlega krækiberja-kombucha frá Kombucha Iceland, en auk þess að vera framleitt úr íslensku vatni þá eru í því íslensk krækiber beint úr náttúrunni sem eru alveg stútfull af andoxunarefnum. Mér finnst frábært að geta stutt íslenska framleiðslu og svo er þetta bara svo gott hjá þeim. Annars er ég líka virkilega hrifin af glóaldinbragðinu, en krækiberja er alltaf í uppáhaldi. Þetta byrjaði hægt hjá þeim og það var stundum erfitt að komast í kombucha frá Kombucha Iceland. En nú hefur greinilega orðið framþróun í fyrirtækinu og ég vona svo innilega að framleiðslan haldi áfram að vera svona lífvænleg og flott hjá þeim í Kombucha Iceland.“

Uppáhaldsbragð Gyðu Dísar er krækiberja og hefur verið um árabil, enda eru íslensku krækiberin stútfull af andoxunarefnum. Mynd/Dani Guindo

Eftirfarandi aðilar í Reykjavík eru meðlimir  í Kombucha Iceland-fjölskyldunni: Krónan | Melabúðin | Fjarðarkaup | Heilsuhúsið | Matarbúðin Nándin | Brauð og co. og nú nýlega er það fáanlegt í Heimkaupum.

Einnig fæst Kombucha Iceland í:

BioBorgara | Kaffihúsi Vesturbæjar | Le Kock| Kaffi Laugalæk | Mr. Joy | Mamá | Te og kaffi| Systrasamlaginu og á fleiri stöðum.

Einnig eru nokkrir sölustaðir úti á landi:

Vistvera á Selfossi| Ljómalind í Borgarnesi| Fisk kompaní á Akureyri | Hús handanna á Egilsstöðum og Kaja Organic á Akranesi.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum