Hermosa verður með allt að 50% afslátt á öllum kynlífsleikföngum í vefverslunninni hermosa.is frá svörtum föstudegi og út Cyber mánudag.
Kynlífstækjaverslunin Hermosa.is býður upp á eitt vandaðasta úrval af leiktækjum ástarlífsins á Íslandi í dag. Verslunin býður upp á ókeypis heimsendingarþjónusta, almennt lágt verð og vel valdar vörur sem hafa sýnt sig og sannað. Hermosa er besta vinkona þeirra sem langar að kynna sér unað kynlífstækjanna á þægilegan, auðveldan og síðast en ekki síst, skemmtilegan máta.
Svartur föstudagur og Cyber mánudagur
Hermosa tekur þátt í afsláttagleðinni í kringum svartan föstudag og stafrænan mánudag og mun gefa allt að 50% afslátt af öllum vörum í vefversluninni. Afslátturinn gildir frá svörtum föstudegi, yfir helgina og út stafrænan mánudag. „Á hverjum degi yfir þetta tímabil munum við birta eina leynivöru sem verður þá á 50% afslætti út daginn, sem er virkilega góður díll. Við treystum á að áhugasamir séu spenntir að kíkja á síðuna og sjá hvaða vara er í boði hvern dag fyrir sig,“ segir Vilhjálmur Þór Gunnarsson, annar stofnenda Hermosa.is.
Samdægurs sendingarþjónusta
„Við vinnum sífellt að því að bæta þjónustuna hvar sem hægt er, en viðskiptavinir okkar hafa kunnað vel að meta góða verðið, fríu heimsendinguna og hvað vefsíðan er þægileg og einföld í notkun. En okkar markmið hefur alltaf verið að einskorða úrvalið við fyrsta flokks vörur. Eins og við segjum oft, þá nennir enginn að skoða 300 dildóa í leit að þeim eina rétta. Við erum búin að leggjast í rannsóknarvinnuna til að einfalda þér lífið.
Nú bjóðum við upp á samdægurs heimsendingu alla virka daga, eða kost á að sækja samdægurs í vöruhús eða á valdar N1 stöðvar á leið heim úr vinnu. Ef pantað er fyrir hádegi þá geturðu fengið vöruna heimsenda samdægurs. Þetta er í raun engu flóknara en að panta pizzu. Þú færð sms þegar varan fer í bílinn og svo annað þegar það eru 15-20 mínútur í að hún komi til þín. Það þarf því ekki að bíða heima í heilan dag eftir heimsendingu. Ef fólk vill sækja þá er hægt að sækja sendingar frá kl. 17 og fram á kvöld á allar N1 stöðvar. Þessi kostur hentar mörgum sem vilja kippa pakkanum með sér heim úr vinnu og vilja ekki þurfa að vera heima. Einnig er hægt að sækja sjálfur í vöruhúsið fyrir kl. 17:00 á daginn.
Svo höfum við bætt við lifandi spjalli á síðunni okkar. Þá geta viðskiptavinir náð í okkur á næstum hvaða tíma sem er sólarhringsins. Við erum nánast alltaf við því við getum hvort heldur er svarað í tölvunni eða símanum.“
Góð verð og enginn aukakostnaður
Frá upphafi var áherslan lögð á að hafa lág verð og kaupferlið sem einfaldast. „Hluti af því er að enginn aukakostnaður bætist við vöruna. Það er því enginn sendingarkostnaður eða annar kostnaður sem bætist við í kaupferlinu. Verðin á síðunni eru verðin sem þú færð vöruna á. Umsagnirnar frá viðskiptavinum hafa einnig verið fram úr hófi jákvæðar hvort sem um ræðir vörur eða þjónustu. Allar þessar frábæru umsagnir hvetja okkur til að vera á tánum og leita sífellt nýrra leiða til að auka þjónustuna en frekar gagnvart okkar frábæru viðskiptavinum. Umsagnir fjalla í mörgum tilfellum um þau markmið sem við höfum sett okkur, þ.e. gott verð, fría heimsendingu og þægilega vefsíðu. Að auki er fólk himinlifandi yfir þjónustunni, en við bjóðum til dæmis upp á 30 daga skilafrest, í stað hinna lögbundnu 14 daga.“
Kíktu við í hermosa.is og skoðaðu úrvalið.
Facebook: Hermosa.is
Instagram: hermosaisland