fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Kynning

Múr og tröppuviðgerðir: Segðu bless við sleipar og illa farnar tröppur

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 17. janúar 2020 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Illa farnar útitröppur geta verið mikið lýti á fallegu húsi. Að sama skapi geta illa veðraðar tröppur með brotnum og daufum köntum verið stórhættulegar. Múr og tröppuviðgerðir er fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu sem sérhæfir sig í tröppuviðgerðum, bæði úti og inni. „Við erum mest í að endurmúra tröppur en tökum líka að okkur ýmsar sprunguviðgerðir, múrun á svalargólfum og önnur smærri múrverk,“ segir Páll Helgi Kristinsson.

Mapei gæðamúr

Múr og tröppuviðgerðir notar eingöngu steypu frá Mapei, sem er norskt steypufyrirtæki sem framleiðir hágæða steypu sem hentar sérlega vel fyrir íslenskar aðstæður. „Múrinn er trefjabundinn, hefur einstaklega gott slitþol og þolir vel alla þá veðrun sem á sér stað hérlendis, meðal annars sífelldar frosthörkur og þíðu á veturna sem og löng rigningarsumur eins og var hér í borginni í fyrra. Múrinn hefur afar góða viðloðun og endist lygilega vel. Það sér vart á tröppum sem við steyptum fyrir sjö árum þegar við byrjuðum að nota múrinn frá Mapei. Ég gæti líka hæglega trúað að steyptar tröppur með Mapei múrnum séu að fara að endast í hátt í 20 ár eða meira. Það miðast við að undirvinnan og múrvinnan sé framkvæmd á réttan hátt.“

Það jafnast ekkert á við Mapei

„Við vinnum verkefni á höfuðborgarsvæðinu, en höfum líka farið eitthvað út á land. Það er alltaf nóg að gera og við erum að fá hátt í 120 verkefni á hverju sumri.“ Það sem fer verst með útitröppur á Íslandi er að sjálfsögðu veðrið, og þá sérstaklega frost og þíða. „Einnig er algengt að fólk sé að salta of mikið eða er að lemja ísinn af tröppunum, en þá getur farið að kvarnast upp úr þeim. Einnig er algengt að fólk sé að nota kolröng efni í útitröppur. Flísar eru til dæmis sjaldan nægilega endingargóðar og við höfum verið að fletta afar illa förnum nýlegum flísum af tröppum til þess að endursteypa þær með Mapei múrnum. Einnig hefur flotun gefið lélegan árangur. Mapei hefur verið í stöðugri þróun gegnum tíðina og alltaf eru að koma ný og betri efni. T.d. er komið inn nýtt efni frá Mapei sem er sérhannað fyrir svalagólf, þar sem það er alveg vatnshelt og er litur í múrnum, sem fólk getur valið um. Þar með heyrir flagnandi málning á svölum sögunni til. Það jafnast ekkert á við Mapei múrinn.“

Þegar tröppur eru illa farnar þarf að byrja á að taka burt allt það efni sem er illa farið og bindingin er farin úr. Trefjastyrktur múr er síðan tvídreginn yfir tröppurnar þannig að hann myndar sterkt slitlag ofan á. „Múrinn þornar svo þannig að það myndast hrjúft yfirborð, eins og á sandpappír, sem verður til þess að það þarf mun sjaldnar að salta. Auk þess er minni hætta á að þær verði sleipar í bleytu eða smá ísingu,“ segir Páll.

Sendu póst á murogtroppur@murogtroppur.is og fáðu tilboð í þínar tröppur, þér að kostnaðarlausu.

Fylgstu með á Facebook: Múrviðgerðir

Sími: 825-0643

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum