fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Kynning

Fjölskyldufyrirtæki í áratugi

Kynning

Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar

Jóhanna María Einarsdóttir, Ritstjórn DV
Föstudaginn 18. september 2020 10:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar er elsta starfandi útfararþjónustan á höfuðborgarsvæðinu. Rúnar hefur alla tíð veitt fyrirtækinu forstöðu sem framkvæmdastjóri þess og útfararstjóri. Útfararþjónustan er í eigu Rúnars og eiginkonu hans, Kristínar Sigurðardóttur, og starfa synir þeirra, Elís og Sigurður, þar ásamt föður sínum.

Orðsporið skiptir útfararþjónustu miklu. „Ef maður sinnir sínu starfi vel er það fljótt að spyrjast út,“ segir Rúnar sem hefur yfir 35 ára reynslu af útfararþjónustu. „Fyrst og fremst þarf að taka tillit til þess að fólk er í sárum eftir ástvinamissi. Við þurfum að gæta að því sem við gerum og segjum og eins að nálgast fólk með hlýju og auðmýkt. Það getur verið mjög erfitt að bjóða fólki við þessar aðstæður þjónustu gegn greiðslu en þetta hefur lærst í gegnum árin og við tökum mikið tillit til þess hvernig aðstæður eru hverju sinni,“ segir hann.

Formaður Félags íslenskra útfararstjóra

Ásamt daglegum störfum við hefðbundna útfararþjónustu er Rúnar Geirmundsson formaður Félags íslenskra útfararstjóra. Félagið hefur verið starfrækt í yfir áratug og hefur Rúnar verið formaður þess allt frá upphafi. Aðaltilgangur félagsins er skapa vettvang til að halda utan um siðareglur útfararstjóra. „Starf mitt sem formaður felst aðallega í því að halda utan um fundastarf og framfylgja reglum og samþykktum aðalfunda. Ég sæki einnig fundi erlendis enda á félagið í talsverðum erlendum samskiptum. Siðareglur evrópskra útfararstjóra eru til að mynda grunnur íslensku siðareglnanna,“ segir Rúnar. Ekki er lagaleg skylda að útfararstjóra séu í félaginu en nánast allir starfandi útfararstjórar eru þó félagsmenn og hafa undirritað siðareglur félagsins.

Virðingin og alúð

Rúnar hefur unnið við útfararþjónustu frá því 1983, fyrst hjá Kirkjugörðunum og síðan í eigin fyrirtæki. Aðspurður segist hann hafa lært það á löngum ferli að það skipti ekki höfuðmáli hvaða trú fólk aðhyllist eða hvort það aðhyllist trú yfirleitt, virðingin fyrir hinum látna sé alltaf í forgrunni. „Og það þurfum við alltaf að hafa í huga, án þess að taka afstöðu til trúmála. Hlýja, auðmýkt og virðing er það leiðarljós sem við fylgjum alltaf.

Þegar andlát ber að garði er mikilvægt að hafa samband við útfararþjónustu sem fyrst,“ segir Rúnar. „Í fyrsta lagi þarf að flytja hinn látna af dánarstað og í líkhús og síðan að byrja að undirbúa kistulagninguna. Útfararstjórinn heimsækir yfirleitt aðstandendur daginn eftir og þeir leggja þá fram óskir sínar varðandi framkvæmd kistulagningar og síðan jarðarfarar. Í því felst í flestum tilfellum að velja prest eða athafnarstjóra og síðan að tímasetja allar athafnir og bóka grafartöku eða bálför. Næsta skref er svo að ákveða hvað kemur í okkar hlut að sinna en við sjáum um allt er lýtur að undirbúningi og framkvæmd útfara. Til að mynda höldum við utan um öll samskipti við aðstandendur, tónlistarfólk, kirkjur, blómabúðir, kirkjugarða og alla þá sem koma að útför.“

Íslensk hönnun og handverk

Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar leggur mikið upp úr því að vera með fallegar kistur á góðu verði sem standast ströngustu kröfur um umhverfisvernd. Algengastar eru hinar hefðbundnu hvítu kistur en alltaf er eitthvað um að fólk vilji harðviðar kistur, til dæmis eik eða mahóní. Val á kistum getur vafist fyrir aðstandendum enda úrvalið nokkuð. „Við eigum umhverfisvænar og fallegar hefðbundnar hvítar kistur, sem eru algengastar, en einnig töluvert úrval af viðarkistum.“ Í fyrsta sinn á Íslandi hefur Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar nú látið hanna og smíða íslenskar kistur úr íslenskum við í samstarfi við Þorstein B. Jónmundsson trésmið. „Við höfum hannað sérstaka kistu og duftker út frá hugmyndinni um íslenska kistu úr alíslenskum við til brennslu og jarðsetningar,“ útskýrir Rúnar. Kisturnar eru úr við sem er unninn og þurrkaður í Hallormsstaðarskógi. „Þessi kista er mjög falleg, úr grófum við og ólökkuð eða máluð á náttúrulegan máta.“

Nánari upplýsingar er að finna á utfarir.is eða í síma 567-9110 allan sólarhringinn, alla daga ársins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum