fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025
Kynning

457 hestafla rafmagnaður tengiltvinn Explorer PHEV

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 24. ágúst 2020 10:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Glænýr rafmagnaður tengiltvinn Ford Explorer PHEV er kominn til Brimborgar og verður frumsýndur á næstunni. Hann er búinn öflugri tvinnaflrás sem er samsett af 3,0 lítra EcoBoost V6 bensínvél auk rafmótors og 10 gíra sjálfskiptingu og 13,1-kWh rafhlöðu og skilar samanlagt 457 hestöflum og 840 Nm af togi. Explorer er 7 sæta lúxusjeppi sem hentar einstaklega vel í lengri ferðir á fjöll, veiði, skíði eða í önnur ævintýri enda með góða veghæð eða 20cm. og dráttargetu upp á 2.500 kg. En jafnfram er nýi Explorer einstaklega hentugur í borgarakstur á hreinu rafmagni með drægi upp á 42 km og auðvelt og fljótlegt að hlaða bæði heima og í vinnu.

7 manna lúxus og 2.274 lítra farangursrými

Nýr Ford Explorer PHEV er endurhannaður frá grunni með nýju, einstaklega fallegu útliti sem er kröftugt og vekur aðdáun annarra vegfarenda. Ford Explorer er einstaklega rúmgóður og með lúxusrými fyrir 7 manns í þremur sætaröðum og því er nóg pláss fyrir alla og risastórt farangursrými. Þegar aftasta sætaröðin er felld niður þá mælist farangursrýmið 2.274 lítrar. Innra rýmið býður upp á 123 lítra geymslupláss um allan bílinn sem gefur öllum farþegum gott pláss fyrir sig og sína hluti. Þar með eru taldir 12 glasahaldarar.

Ríkulegur búnaður

Nýr Ford Explorer PHEV kemur í tveimur útgáfum, Platinum og ST-Line útgáfu. Báðar þessar útgáfur eru hlaðnar ríkulegum staðalbúnaði sem er með því flottasta sem er í boði. Sérhvert smáatriði er úthugsað til að tryggja lúxustilfinningu, hvort sem þú ert að aka um í borginni eða í meira krefjandi landslagi. Hann er með 10,1 tommu snertiskjá, nýjustu útgáfuna af SYNC 3, með FordPass Connect tengingu, B & O hljóðkerfi með 14 hátölurum og nudd í framsætum þannig þér líður alltaf vel við aksturinn sem verður því einstaklega skemmtilegur. Að auki er 360°myndavél með tvískiptum skjá, fjarlægðarstillanlegur hraðastillir, BLIS með aðvörun fyrir hliðarumferð, umferðaskiltalesari og veglínuskynjari, árekstrarvari að framan sem skynjar einnig gangandi og hjólandi vegfarendur til að tryggja öryggi.

Ford Explorer PHEV kostar 11.990.000 kr.

Meira um Ford Explorer hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7