fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

„Þið eruð geðveikir!“ sagði hann og skrensaði í burtu

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 12. júlí 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjóbretti er regnhlífarhugtak sem nær yfir ýmiss konar bretti svo sem brimbretti, stand & paddle-bretti, wake-bretti og fleira. Þetta tiltekna sport verður sífellt vinsælla hér á landi og ekki að ástæðulausu. Fæstir myndu andmæla því að hér sé öldugangur mikill um strandir allar. En þeir gera sér grein fyrir, að í réttum aðstæðum eru þessar öldur fullkomnar fyrir sjóbrettaiðkun. „Fyrir stuttu seldust upp tvær stórar sendingar til Costco af brimbrettum fyrir byrjendur. Hver sending fyrir sig var um 50–60 bretti á hagstæðu verði. Þetta sýnir svart á hvítu hvað þetta er orðið vinsælt sport og hvað fólk sækist mikið eftir þessu,“ segir Guðmundur Vigfússon, eigandi Jaðarsports.

Ægilega glaðir í ólgusjó

„Ég er forfallinn brimbrettafíkill. Það jafnast ekkert á við það að fljóta í sjónum og finna fyrir þeim mögnuðu náttúruöflum sem hafið er og vanmátt sinn gagnvart því. Ég segi stundum að saltið í sjónum jafni mig út, en ástríðan gagnvart brettaiðkuninni er sterkari en allt. Ég man eftir því þegar ég og Knútur, vinur minn, vorum að „sörfa“ í stórsjó í Þorlákshöfn á áramótum. Þegar við komum upp úr sjónum, skælbrosandi, sat fyrrverandi skipstjóri sem ég kannaðist við, inni í bíl og góndi á okkur. Hann æpti á mig orðrétt: „Þið eruð geðveikir,“ svo setti hann í bakkgír og skrensaði í burtu. Það er sannleikskorn í þessu, enda var um -10°C úti, mikið brim og ískalt í sjóinn. Þetta voru manndrápsöldur, ef litið er á þær sjómannsaugum. Reyndur brimbrettamaður í flotgalla á góðu bretti hefur þó mun meiri stjórn en bátur í svona aðstæðum.“

Jaðarsport varð óvart til

Jaðarsport stofnaði Guðmundur vegna eftirspurnar. „Fólk var að hafa samband við mig og spyrjast fyrir um sjóbrettaiðkun. Þá fór ég að bjóða fólki að koma með mér að prófa bretti. Í dag tek ég á móti um 10–20 manna hópum í hvert sinn. Í sjóbrettasporti skipta aðstæðurnar öllu máli. Öryggið þarf að vera í lagi. Vilji fólk prófa bretti á ákveðnum tíma eða degi, dreg ég fram það sem hentar hverju sinni. Í mikilli öldu prófum við brimbretti og ef sjórinn er sléttur, þá er hægt að fara í wake boarding. Bretti er þá fest aftan í sérhannaðan bát. Fyrir aftan bátinn myndast öldur sem virka sem stökkpallur fyrir sjóbrettið. Við erum líka með jetski fyrir þá sem eru að prófa í fyrsta skipti, en þá myndast minni öldur og farið er hægar yfir.“

Wake Boarding

Einnig er hægt að skrá sig á lista hjá Guðmundi og fá tilkynningu þegar það viðrar vel fyrir brimbretti eða wake boarding eða hvað sem er. „Þá förum við á þann stað sem hentar best fyrir tiltekna sjóbrettaiðkun. Þetta getur verið í Þorlákshöfn, Reykjavík eða þess vegna Vestmannaeyjum. Fólk getur notað eigin búnað ef það á hann, eða leigt hjá mér.“

Sit & paddle bretti

Góður andi og engin keppni

„Það hefur myndast flottur hópur af fólki sem mætir reglulega og erum við svolítið eins og óformlegt íþróttafélag eða líkamsrækt. Að sjálfsögðu eru þó allir áhugasamir velkomnir. Við tökum vel á móti öllum nýjum félögum. Ég hef leiðbeint fólki á öllum aldri og öllum getustigum, byrjendum og lengra komnum. Fegurðin við þetta sport er sú að þetta er ekki keppni og það geta allir stundað þetta saman, burtséð frá getustigi og aldri.

Þetta er svona „good vibes“ íþrótt og mér finnst mjög nauðsynlegt að halda því þannig. Ég veit fátt fáránlegra í heiminum en fólk að metast og keppa. Í sörfinu eru sumir á longboard og aðrir eru á shortboard. Í námskeiðum í Þorlákshöfn byrjum við í höfninni og höldum út á rúmsjó. Loks tökum far með öldunni inn í fjöru. Menn eru ýmist á eins manns, tveggja manna, þriggja og alveg upp í sex manna sit & paddle-bretti. Það fer eftir getu hvers og eins og því hvernig hann er stemmdur hverju sinni.“

Jaðarsport er með töluvert af búnaði til sölu fyrir brimbrettasportið. „Ég er aðallega með sérhannaðan búnað sem nýtist í allar gerðir sjóbrettaiðkunar; þá sérstaklega á norðlægari slóðum. Á sumrin er íslenski sjórinn ekki öfgakaldur, en hann getur orðið mjög kaldur á veturna. Ég sel blautgalla sem halda líka á fólki hita, sem og hanska, sokka og annan búnað,“ segir Guðmundur.

Fylgstu með Jaðarsporti á Instagram: Jadarsport

Óseyrarbraut 65, Þorlákshöfn

Sími: 776-4567

Vefpóstur: mummi@mummi.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum