fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Gúmmísteypa Þ. Lárusson hefur keypt færibandalager IBH

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 8. júní 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gúmmísteypa Þ. Lárusson ehf. mun í maí 2019 ganga frá kaupum á stórum lager færibandareima frá IBH. Framleiðandi reimanna er svissneska fyrirtækið Habasit.

Sérfræðingar í færiböndum og gúmmíi

Eigandi fyrirtækisins er Þorsteinn Lárusson og Berglind Steinunnardóttir er framkvæmdastjóri. Gúmmísteypan hefur verið starfrækt í hartnær 70 ár.

„Á þessum árum höfum við þjónustað útgerðaraðila, sveitarfélög, verktaka, stóriðju, vélsmiðjur og fyrirtæki í verslun og þjónustu. Við erum sérfræðingar í framleiðslu og uppsetningu á færiböndum og hvers kyns vörum úr gúmmíi,“ segir Berglind.

Blómstrandi viðskipti

Í maí 2017 bættust við færibönd úr plasti fyrir matvælaiðnað þegar Gúmmísteypan keypti Reimar og bönd ehf. Sú viðskipti hafa blómstrað og er Gúmmísteypan enn að bæta við sig.

„Frá því við keyptum Reimaþjónustuna hefur stefnan verið að vera með allar gerðir færibanda á lager. Með þessari viðbót er það nú orðið að veruleika,“ segir Berglind.

Með þessari viðbót mun Gúmmísteypan sækja í sig veðrið í svokölluðum kubbaböndum (e. modular belts) auk þess að auka úrval á framboði annarra reima fyrir matvælaiðnað.

Gúmmísteypan er staðsett að Gylfaflöt 3, 112 Reykjavík

Nánari upplýsingar má finna á gummisteypa.is

Sími: 567-4467

Netpóstur: gummisteypa@gummisteypa.is

Fylgstu með okkur á facebook: Gúmmísteypa Þ. Lárusson

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum