fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Kynning

Hjólað í vinnuna 2019

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Miðvikudaginn 8. maí 2019 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarverkefninu Hjólað í vinnuna sem hefur verið haldið árlega í maí og stendur yfir í þrjár vikur í senn. Undanfarinn áratug hefur orðið gríðarleg vakning í þjóðfélaginu um hjólreiðar sem heilsusamlegan samgönguvalkost. Starfsmenn vinnustaða hér á landi hafa aldeilis tekið vel við sér því þátttakan hefur margfaldast á nokkrum árum. Þegar Hjólað í vinnuna rúllaði af stað árið 2003 tóku 533 einstaklingar þátt en þátttakan óx ár frá ári og náði hámarki árið 2012 þegar 11.381 einstaklingur tóku þátt. Ætla má að margir þátttakendur hafi tekið hjólreiðar upp sem lífsstíl í framhaldi af þátttöku sinni í verkefninu. ÍSÍ er stolt af því að hafa stuðlað að bættri hjólamenningu á Íslandi og orðið til þess að vinnustaðir og sveitarfélög hafi bætt til muna aðstöðu fyrir hjólandi fólk. Hjólað í vinnuna er nú orðið hluti af menningu margra vinnustaða í landinu í maí ár hvert.

Meginmarkmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Þátttakendur eru hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur til og frá vinnu í þrjár vikur í maí ár hvert.

Í ár fer Hjólað í vinnuna fram frá 8.–28. maí og er það í 17. sinn sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir þessari heilbrigðu vinnustaðakeppni um allt land. Verkefnið verður sett formlega í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum miðvikudaginn 8. maí kl. 8.30 og er öllum sem vettlingi geta valdið boðið að hjóla við og þiggja ljúffengt bakkesli, hlýða á hressileg hvatningarávörp og hjóla svo verkefnið táknrænt af stað með okkur.

Keppnisgreinar í Hjólað í vinnuna eru tvær. Í fyrsta lagi er vinnustaðakeppni þar sem keppt er um flesta þátttökudaga hlutfallslega miðað við heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum. Keppt er í átta keppnisflokkum út frá stærð vinnustaða. Í öðru lagi er kílómetrakeppni þar sem keppt er á milli liða um annars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra miðað við fjölda liðsmanna í liði.

Hverjir eru gjaldgengir þátttakendur? Allir geta tekið þátt í Hjólað í vinnuna svo framarlega sem þeir nýta eigin orku til og frá vinnu þ.e. hjóla, ganga, hlaupa, nota línuskauta o.s.frv. Þeir sem nýta almenningssamgöngur geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem gengin eða hjóluð er til og frá stoppistöð.

Meðan á átakinu stendur eru ýmsir leikir í gangi svo sem skráningarleikur þar sem allir þátttakendur fara sjálfkrafa í pott og eiga möguleika á að vera dregnir út í þættinum Morgunverkin á Rás 2 alla virka daga. Hjólreiðaverslunin Örninn gefur glæsilega vinninga og þann 28. maí er dregið út glæsilegt reiðhjól að verðmæti 100.000 kr. Myndaleikur verður í gangi á Instagram, Facebook og á vefsíðu Hjólað í vinnuna þar sem fólk er hvatt til að taka skemmtilegar myndir af þátttöku sinni í verkefninu og merkja myndina með #hjoladivinnuna. Með því gætu þátttakendur unnið veglega vinninga frá Nutcase á Íslandi. Auðvelt er að skrá sig til leiks ásamt því að finna allar frekari leiðbeiningar um verkefnið á www.hjoladivinnuna.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7