fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Brúðargjafalisti í Kúnígúnd léttir skrefin fyrir brúðhjón og gesti

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 24. maí 2019 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brúðkaupum fylgir mikill undirbúningur, því er ákaflega þægilegt fyrir verðandi brúðhjón að stofna brúðargjafalista og klára þá hlið undirbúningsins áður en dagskráin þéttist hvað mest á lokametrunum. Brúðhjónin geta komið í verslanir Kúnígúnd eða skoðað allt úrvalið á heimasíðunni með góðum fyrirvara, séð hvað stendur þeim til boða og gert sér þannig betur grein fyrir hvað kæmi sér vel að fá nýtt og hvað mætti kannski endurnýja á heimilinu.

Brúðkaupslistar, ekki bara fyrir brúðhjónin

Eins hefur það sýnt sig að tilvonandi veislugestum þykir gott að fá ábendingar og hugmyndir um hvað kæmi sér best fyrir viðkomandi brúðhjón. Gjafalistinn er aðgengilegur gestum bæði á vefsíðu Kúnígúnd og í verslunum þar sem starfsfólk sér til þess að sama gjöfin sé ekki keypt tvisvar með því að merkja við þegar verslað er af listanum. Starfsfólk Kúnígúnd er öllu vant og getur aðstoðað við stofnun brúðargjafalista eða við að velja rétta brúðargjöf.

Grætt á gjafalistum

Tilvonandi brúðhjón sem stofna brúðargjafalista hjá Kúnígúnd fá gjafabréf að andvirði 15% af því sem verslað er fyrir á listanum ef úttekt af brúðargjafalistanum samsvarar 10.000 krónum að lágmarki. Þess má einnig geta að brúðhjón sem stofna brúðargjafalista í apríl og maí fara sjálfkrafa í pott þar sem hin glæsilega nýja Queen of Hearts KitchenAid hrærivél er í vinning!

Hjartadrottningin sjálf.

Aðgengilegur listi hvar og hvenær sem er

Kúnígúnd rekur einnig glæsilega netverslun þar sem einfalt er að stofna, bæta við og skoða brúðargjafalista. Kúnígúnd er jafnframt ein af fáum gjafavöruverslunum landsins þar sem brúðargjafalistinn í heild sinni er aðgengilegur á vefsíðu verslunarinnar sem léttir skrefin fyrir alla, bæði gesti og brúðhjón.

Glæsileg matarstell

Í Kúnígúnd fæst mikið úrval af vandaðri gjafavöru frá þekktum hönnuðum með áherslu á Norðurlöndin. Brúðhjón geta bætt matarstellum frá m.a. Royal Copenhagen, Georg Jensen, Rosendahl og Villeroy & Boch á gjafalistann, svo fátt eitt sé nefnt. Brúðhjónum er líka velkomið að kíkja í Kúnígúnd Kringlunni til þess að sjá glæsilegar útstillingar og fá hugmyndir að því hvernig má raða saman í matarstell. Royal Copenhagen-mynstrin eru til að mynda fjölbreytt í lit og gerð og henta sérstaklega vel til þess að blanda mismunandi línum saman í stell.

Þá fæst mikið úrval af glösum, karöflum, hnífapörum og öðrum borðbúnaði sem hentar vel í brúðargjafir. Brúðhjón setja þá það magn sem þau vantar á listann og starfsfólk Kúnígúnd hakar við þegar hluti er keyptur af settinu en varan dettur síðan út af lista þegar viðeigandi magn hefur verið keypt. Þannig fá brúðhjónin ekki auka glasapar, kökugaffla sem passa ekki við hnífapör og fleira sem veldur því að þau þurfi að standa í vöruskilum og skiptum fyrstu vikurnar eftir brúðkaupið.

Vönduð sængurföt fyrir notalegar hveitibrauðsnætur

Fátt kemur góðu hjónabandi af stað eins og vönduð sængurföt sem auka þægindi og slökun á hveitibrauðsnóttum. Hjá Kúnígúnd fást glæsileg sængurföt, sloppar, handklæði, dúkar, viskastykki og fleira úr 100% egypskri bómull frá Georg Jensen Damask. Úrvalið er mikið og ættu öll hjón að finna eitthvað við sitt hæfi.

Meðal annarra glæsilegra vörumerkja sem fást í Kúnígúnd eru Erik Bagger, Holmegaard, KitchenAid, Le Creuset, Lind DNA, Frederik Bagger, Lyngby Porcelæn og Wusthof. Allar vörur sem keyptar eru í Kúnígúnd eru merktar versluninni og því er auðvelt að skipta og breyta eftir á ef þörf krefur. Starfsfólk Kúnígúnd pakkar vörunum inn í fallegar umbúðir og þar eru einnig fáanleg vönduð kort til sölu til að auðvelda gestum að klára gjafakaupin í heild sinni.

Allt úrvalið má skoða í vefversluninni kunigund.is, ásamt ítarlegum leiðbeiningum um stofnun brúðargjafalista.

Brúðhjónum er líka velkomið að heimsækja Kúnígúnd, sem er bæði staðsett í Kringlunni og á Glerártorgi á Akureyri og þiggja aðstoð við samsetningu og stofnun brúðargjafalista frá þrautþjálfuðu starfsfólki Kúnígúnd.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum