fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Íslenskar konur eru óhræddar við að tjá sig með nöglunum!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 20. desember 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge er í eigu Gísla og Hrafnhildar. „Við opnuðum stofuna í fyrra í Síðumúlanum. Þar vorum við með naglabar, naglaheildsölu og naglanámskeið. Fljótlega bættist svo við LPG endermalogie nuddmeðferð. Áhuginn fyrir naglanámskeiðunum var töluvert meiri en við gerðum okkur grein fyrir og á innan við ári sprengdum við húsnæðið utan af okkur,“ segir Hrafnhildur. Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge er nú nýflutt í stórglæsilegt húsnæði að Nýbýlavegi 14, sem rúmar aukna starfsemi snyrtistofunnar.

LPG endermalogie nuddmeðferð er frábær jólagjöf.

„Í dag er þetta lúxus snyrtistofa með nokkuð öðruvísi sniði en gengur og gerist hérlendis, en fyrirmyndin kemur frá Los Angeles. Við erum þá allt í senn heildsala með naglavörur, naglaskóli, snyrtistofa og bjóðum einnig upp á LPG endermologie nudd og námskeið í augnháralengingu.“

LPG fyrir heilsuna og útlitið

Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge býður upp á hið frábæra LPG endermologie nudd. „LPG endermologie nuddið er alger snilld fyrir unga sem aldna og hefur margvísleg áhrif á bæði heilsu og útlit. Það var ein sem kom til okkar um daginn og sagði eftir á að henni hefði ekki liðið jafn vel í skrokknum í 25 ár.

Það gersamlega vekur líkamann með auknu blóðflæði. Það losar bólgur og vöðvabólgu en er einnig gott við gigt og verkjum. Nuddið losar stíflur í sogæðakerfinu svo líkaminn fer að vinna betur við að losa sig við eiturefni og bjúg. Nuddið er einnig gott fyrir útlitið en það stinnir og þéttir húðina, vinnur á appelsínuhúð og erfiðum fitusvæðum, örum, sliti og örvef. Andlitsnuddið eykur kollagen, elastín og hýalúrónsýru í húðinni, gefur ljóma, stinnir slappa húð og vinnur á fínum línum. Gjafabréfin í LPG seljast líka mjög vel fyrir jólin enda tilvalin í jólapakkann handa ástinni.“

Neglur eru ástríða okkar

„Íslenskar konur elska að vera með gelneglur í dag, enda eru neglurnar oft það sem setur punktinn yfir i-ið. Það er ótrúlega gaman að sjá hvernig allt virðist vera í tísku. Það er gríðarlegur fjölbreytileiki í skrauti, formi, lengd og litavali. Fólk getur í rauninni hannað neglurnar algerlega eftir sínu höfði og sínum persónuleika. Við erum líka að bjóða upp á augnháralengingar sem og námskeið í því.“

Vantar fleiri karla í bransann

Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge býður upp á afar vinsæl naglanámskeið. „Við verðum bráðum með hópnámskeið í gelnöglum. Einnig bjóðum við upp á einkanámskeið í gel- og akrýl en tímasetning á þeim er eftir samkomulagi. Einnig bjóðum við upp á masterclass fyrir þá sem eru lengra komnir.

Við fáum til okkar alls konar konur í námskeiðin. Sumar koma út af áhuga eða langar að gera neglur á vini og vandamenn. Aðrar vilja leggja þetta fyrir sig og opna sjálfar snyrtistofu í framtíðinni. Það sem mér finnst vanta í bransann hér heima eru fleiri karlmenn. Hann Gísli okkar er líklega eini karlinn á Íslandi sem kann að gera neglur og ferst það virkilega vel úr hendi. Vonandi fáum við að sjá fleiri karlmenn í faginu, þeir eru nefnilega líka miklir listamenn.“

Skráning í námskeið

Skráning er nú hafin í hópnámskeið í gelnöglum í síma 616-1229. Síðar verða auglýst masterclass námskeið. Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge verður svo með fullt af skemmtilegum og skrautlegum uppákomum á komandi mánuðum og því er um að gera að fylgjast með á Facebook: Reykjavík Nail Bar and beauty lounge.

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni reykjaviknailbar.com og Facebook-síðunni Reykjavík Nail Bar and Beauty Lounge.

Fylgstu með okkur á Snapchat: beautyfactory01 og Instagram: @reykjaviknailbar

Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge er staðsett að Nýbýlavegi 14, Kópvogi.

Sími: 772-0100 og 616-1229.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum