fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Jólagjöfin í ár er frá KitchenAid!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Miðvikudaginn 18. desember 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástríða og nýjungar í 100 ár

Síðan hin heimsþekkta hrærivél var fyrst kynnt til sögunnar árið 1919 og fyrsta uppþvottavélin 1949, hefur KitchenAid byggt á grunni þessara goðsagnakenndu tækja til þess að þróa heilu vörulínurnar, sérstaklega gerðar fyrir fólk með ástríðu fyrir matargerð.

Ástríðurauður

Fyrr á þessu ári kom út sérstök 100 ára afmælislína, Queen of Hearts, þar sem rauður einkennislitur KitchenAid var heiðraður. Þessi nýi, rauði litur hlaut nafnið „passion red“, eða ástríðurauður. Það sem einkennir þessa einstöku 100 ára afmælislínu er rauður borði skreyttur með hundruðum örsmárra hjartna, fyrir allar þær minningar sem fjöldi ástríðufullra heimakokka hefur skapað síðustu 100 ár.

Ekki bara hrærivélar

Flestir þekkja hrærivélina, sem er stolt og prýði í eldhúsum margra landsmanna. En stóru heimilistækin frá KitchenAid eru einnig hönnuð með þægindi í huga og til að auðvelda handtökin í eldhúsinu. Við hönnun tækjanna er tekið tillit til athugasemda fagfólks. Fylgst er með kokkum við störf og þannig má greina þarfir þeirra sem elda mikið. Með þessu móti er hægt að hanna tæki sem bæta eldhúsið og matargerðina fyrir alla. Heimilistækin frá KitchenAid eru hönnuð til að endast, bæði hvað varðar útlit og gæði.

Í dag býður KitchenAid upp á nærri því öll möguleg tæki sem þarf í vel útbúið nútímaeldhús. Vörulína KitchenAid inniheldur allt frá hrærivélum, búsáhöldum og vínskápum til eldunartækja og kæliskápa.

 

KitchenAid í þvottahúsið

Vörulínan nær meira að segja alla leið í þvottahúsið! Núna er þessi glæsilega og öfluga, 10 kílóa stálþvottavél frá KitchenAid fáanleg í Raflandi. Hún er með ZEN hljóðlátum beindrifnum mótor, íslensku skjáborði og Wave Motion tækni sem tryggir betri þvottagæði á öllum kerfum. Tímastýrð ræsing, fimmtán mismunandi þvottakerfi og sérstakt 30 mínútna hraðkerfi auðveldar húsverkin fyrir annasamt heimilislífið.

Rafland er stærsti söluaðili KitchenAid á Íslandi – í heimilistækjadeild Raflands, Síðumúla 4, má skoða úrvalið af KitchenAid hrærivélum og heimilistækjum og starfsfólk þar getur svarað öllum spurningum varðandi meðhöndlun og notkun KitchenAid. Einnig má skoða úrvalið á rafland.is

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum