fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Refocus: Endurheimtu orku og einbeitingu með fæðubótarefni sem hannað er fyrir Íslendinga

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 24. nóvember 2019 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

REFOCUS er glænýtt íslenskt fæðubótarefni með viðbættu járni og D-vítamíni og hannað fyrir huga og orku. Refocus er sérstaklega sniðið að námsmönnum og fólki sem er í krefjandi starfi og vill auka orkuna og bæta einbeitinguna. Járn- og D-vítamínskortur er algengasti næringarskortur fólks um allan heim. D-vítamínskortur er sérstaklega viðvarandi á Íslandi og víðar á Norðurlöndunum þar sem fólk býr við skert sólarljós marga mánuði á ári. Hann getur í öfgakenndum tilfellum leitt til beinþynningar og beinkramar. Einnig er hann algengur hjá þeim sem þjást af depurð og þunglyndi og jafnvel vefjagigt. Þess má geta að á meðan flest D-vítamín er unnið úr dýraafurðum þá er D-vítamínið í Refocus 100% vegan. Járnskortur getur einnig valdið fölva, þreytu og minna úthaldi. Refocus hentar afar breiðum hópi fólks og er fullkomið fæðubótarefni fyrir Íslendinga.

Kísill fyrir heilsuna

Refocus er í grunninn kísilsteinefni sem þróað var af GeoSilica og er með viðbættu vegan D 3-vítamíni og járni. Kísillinn er í öllum vörum GeoSilica en kísill er afar góður og getur stutt við æðakerfið, bein, vöðva, liði, húð, hár og neglur. Hann getur einnig stutt vel við ónæmiskerfið og hjálpar til við upptöku á öðrum steinefnum. Við fæðumst öll með ákveðið magn af kísil í líkamanum sem minnkar svo eftir því sem við eldumst. Kísill er því eitthvað sem við ættum öll að huga að því að taka inn.

5 fæðubótarefni fyrir aukin áhrif

GeoSilica hefur áður komið með fjórar aðrar vörur á markað. Það eru Pure, sem er 100% hreint kísilsteinefni, Renew, sem er kísilsteinefni með viðbættu sinki og kopar fyrir húð, hár og neglur, Repair, kísilsteinefni með viðbættu mangan fyrir bein og liði, og svo Recover, kísilsteinefni með viðbættu magnesíum fyrir vöðva og taugar. Þeir sem hafa innleitt fæðubótarefnin frá GeoSilica í daglega rútínu sína hafa allir gott eitt að segja um vörurnar. Fæðubótarefni er ekki töfralausn, en flestir sem hafa byrjað að nota vörurnar frá GeoSilica finna mun á sér eftir fyrstu flöskuna.

Fida Abu Libdeh, framkvæmdastýra GeoSilica.

,,Ég hef sjálf verið með járn- og D-vítamínskort sem er afar algengt um allan heim og sérstaklega á Norðurlöndunum þar sem við búum við skert sólarljós hluta árs. Ég á sjálf erfitt með að taka töflur yfirhöfuð og veit að það er lítið framboð á steinefnum af þessu tagi í vökvaformi. Það lá fyrir að fara í þróun á hágæða fæðubótarefni sem inniheldur steinefni og vítamín sem flestir íslendingar þurfa á að halda. Varan hefur vakið mikla athygli hér heima og erlendis, sérstaklega vegna þess að það eru fáar vörur á markaði sem innihalda D-vítamín og járn og eru veganvottaðar,“  segir Fida Abu Libdeh, framkvæmdastýra GeoSilica.

Íslensk framleiðsla og hugvit

Allar vörur frá GeoSilica eru algerlega lausar við öll skaðleg aukaefni, innihaldsefni eru fá og örugg og vörurnar eru allar veganvottaðar. Vörurnar eru framleiddar á Íslandi og unnar úr íslensku jarðhitavatni. Þær eru í vökvaformi og því auðveldar í inntöku. Til dæmis má bæta fæðubótarefninu út í safa, hristinga, kaffi eða taka eitt og sér, allt eftir því hvað hentar. Renew, Repair, Recover og nú nýjast á markaðnum, Refocus, eru sérsniðin fæðubótarefni sem henta nútímamanninum á þann hátt að viðbættu efnin styrkja það sem hver og einn er að leita eftir. Eitt fæðubótarefni fyrir aukna virkni. Pure og Repair eru svo til bragðlaus, Renew er með geláferð, Recover er súrt en bragðið kemur af viðbættu magnesíum sítrat og Refocus einkennist af mildu járnbragði sem kemur frá viðbættum steinefnum og vítamíni.

Fæðubótarefnin frá GeoSilica:

  • Fyrir ónæmiskerfið, bein, vöðva, liði, húð, hár og neglur
  • Geta hjálpað til við upptöku á öðrum steinefnum
  • Fá innihaldsefni
  • Laus við skaðleg aukaefni
  • Unnin úr íslensku jarðhitavatni
  • Framleidd á Íslandi
  • Veganvottuð
  • Auðveld til inntöku
  • Eru í vökvaformi sem getur stuðlað að góðri upptöku

Yfir 120 sölustaðir um land allt

Vörurnar frá GeoSilica fást á yfir hundrað sölustöðum um allt land, meðal annars í matvöruverslununum Nettó, Fjarðarkaupum og Hagkaupum, öllum helstu apótekum og ýmsum heilsuvöruverslunum. Einnig er hægt að panta vörurnar beint á vefsíðu GeoSilica, geosilica.com.

Nánari upplýsingar má nálgast á geosilica.com.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum